Löðrandi í olíu í nýjustu auglýsingaherferðinni

Kim Kardashian birtir reglulega myndir af sér á Instagram í …
Kim Kardashian birtir reglulega myndir af sér á Instagram í bikiníi. Samsett mynd

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er ekki óvön því að senda frá sér ögrandi auglýsingaefni og á nýjustu myndum fyrir Skims–fatalínuna sést Kardashian klædd í svart pleður–bikiní, hnéhá stígvél og hanska úr Faux Leather and Rubberized Scuba Swim–línunni.

Kardashian sat fyrir hjá hinum virta ljósmyndara Steven Klein, en hann hefur myndað raunveruleikastjörnuna mjög reglulega í gegnum árin. Klein á meðal annars heiðurinn af myndaseríu sem birtist af Kardashian klædd upp sem Jackie Kennedy og olli hún miklu fjaðrafoki þegar hún birtist í tímaritinu Interview árið 2017. 

Á hinum nýju auglýsingamyndum sést Kardashian löðrandi í líkamsolíu og klædd í nýjasta bikiní Skims, en hún hefur reglulega fengið á sig mikla gagnrýni fyrir að vörur hennar séu almennt mjög efnislitlar og hylji ekki það sem eigi að hylja. Það verður því forvitnilegt að sjá hvað verður sagt um þessa nýju pleður- og gúmmílínu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál