Förðunarfræðingarnir, Heiður Ósk Eggertsdóttir og Ingunn Sigurðardóttir eigendur Reykjavík Makeup School og HI beauty, eru komnar með sitt eigin snyrtivörumerki sem kallast Chilli in June. Þær fögnuðu þessum áfanga með kvöldverði í hópi nokkurra kvenna á veitingastaðnum Tides á Editon hótelinu í gærkvöldi. Þær segja að förðunarmerkið uppfylli allar helstu gæðakröfur fagmanna en vörurnar eru handunnar og framleiddar á Ítalíu.
Fyrsta förðunarvaran frá Chilli in June er HOT Bronzer sem veitir gefur húðinni sólkyssta áferð. Bronzerinn er litsterkur og auðveldur í blöndun og hentar bæði byrjendum sem og fagmönnum og kemur í vefverslun merkisins á mánudaginn kemur.
„Við byrjuðum að vinna saman árið 2019 eftir margra ára vináttu og ákváðum að gera okkar eigin förðunarmerki og þá hófst ævintýrið. Við byrjuðum á því að panta hráefni sjálfar og mixa í eldhúsinu heima hjá Heiði, þar til við föttuðum að þrátt fyrir að vita nákvæmlega hvað við viljum þá erum við ekki efnafræðingar. Að lokum fundum við efnafræðing í Ítalíu og höfum við verið að vinna með henni að búa til drauma förðunarvörurnar okkar,“ segir Ingunn.
„Til að fjármagna vörumerkið héldum við förðunarnámskeið sem heitir í dag, Kvöldstund með HI beauty, þar sem við kennum fólki að farða andlit með sínum eigin vörum. Námskeiðin slógu aldeilis í gegn og á aðeins 2 mánuðum höfðum við kennt yfir 250 konum að farða sig. Þetta námskeið er enn í dag eitt af okkar vinsælustu námskeiðum hjá Reykjavík Makeup School,“ segir Heiður.
Það var þó ýmislegt sem setti strik í reikninginn eins og heimsfaraldur kórónuveirunnar.
„Með tilkomu kórónuveirunnar þurftum við að pása aðeins þróunina á merkinu. Í millitíðinni keyptum við Reykjavík Makeup School, gáfum út podcast, framleiddum okkar eigin sjónvarpsþætti og margt fleira,“ segir Ingunn.
Heiður og Ingunn hafa unnið að vöruþróun í fjögur ár.
„Það er því mikið afrek að vera loksins komnar með fullkomnu fyrstu vöruna okkar í hendurnar og getum við ekki beðið eftir því að almenningur fái loksins að prófa,“ segir Heiður.