Í agnarsmáum 2,5 milljóna Gucci-brjóstahaldara

Kim Kardashian klæddist Gucci-fatnaði að andvirði rúmlega 3,2 milljón króna.
Kim Kardashian klæddist Gucci-fatnaði að andvirði rúmlega 3,2 milljón króna. Samsett mynd

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian birti nýverið sjóðheita myndaröð af sér í agnarsmáum en rándýrum brjóstahaldara frá tískuhúsinu Gucci.

Þrátt fyrir að vera efnislítill er brjóstahaldarinn ekki ódýr enda er hann þakinn kristöllum. Það var Alessandro Muchele sem hannaði brjóstahaldarann sem var hluti af fatalínu Gucci árið 2019 og vakti þó nokkra athygli á tískupöllum.

Brjóstahaldarinn er sjaldgæfur og kostar á endursölumarkaði 18 þúsund bandaríkjadali, eða sem nemur rúmum 2,5 milljónum króna á gengi dagsins í dag. 

Við myndaröðina skrifaði Kardashian: „Þetta er allt Gucci“ sem á vel við, enda er hún klædd í fatnaði frá tískuhúsinu frá toppi til táar. Við brjóstahaldarann klæddist hún silkibuxum sem kosta 1.650 bandaríkjadali, eða rúmlega 231 þúsund krónur, og silkikjól sem kostar 3.600 bandaríkjadali sem nemur rúmum 505 þúsund krónum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál