Lykillinn að unglegu útliti Veru Wang

Vera Wang er 74 ára og alltaf flott.
Vera Wang er 74 ára og alltaf flott. AFP

Galdurinn á bak við unglegt útlit Veru Wang er eflaust ekki það sem flestir myndu giska á. Wang, sem er komin á áttræðisaldur, lítur ekki út fyrir að hafa elst undanfarna áratugi en hún segir enga töfralausn liggja að baki unglegu útliti hennar.

Fatahönnuður stjarnanna greindi frá því hvað heldur henni unglegri á DMKS viðburðinum, sem haldinn var í New York-borg á fimmtudagskvöldið.  

„Ég borða McDonalds, ég panta mér máltíð þaðan á hverjum degi,“ sagði Wang við blaðamann, sem var forvitinn um það hvernig hún viðhaldi unglegu útliti sínu.

Ljúffeng hamborgaramáltíð frá vinsælu skyndibitakeðjunni er þó ekki eina ruslfæðan sem heldur Wang geislandi og unglegri. Hún keyrir reglulega á kleinuhringjastaðinn Dunkin' Donuts, sem við Íslendingar fengum að kynnast um stund hér um árið, og fær sér sultafyllta kleinuhringi. 

View this post on Instagram

A post shared by VERA WANG (@verawanggang)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál