Brynhildur frumsýnir nýja hárið

TikTok-stjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir frumsýndi nýtt lúkk á samfélagsmiðlum.
TikTok-stjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir frumsýndi nýtt lúkk á samfélagsmiðlum. Skjáskot/Instagram

Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hún er með yfir 1,6 milljónir fylgjenda. Á dögunum kom hún aðdáendum sínum verulega á óvart þegar hún frumsýndi nýtt útlit.

Á samfélagsmiðlum er Brynhildur dugleg að deila lífsstílstengdu efni sem snýr meðal annars að heilsurækt, snyrtivörum og tísku.

Brynhildur skellti sér í klippingu á dögunum og virðist hafa ákveðið að breyta aðeins til. Hún lét klippa á sig topp sem hún skartar í nýjasta TikTok-myndskeiði sínu. Þá birti hún einnig mynd af nýja hárinu á Instagram.

Brynhildur birti mynd af nýja hárinu á Instagram í gær.
Brynhildur birti mynd af nýja hárinu á Instagram í gær. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál