Bandaríska söngkonan Kelly Clarkson kom aðdáendum sínum verulega á óvart nýverið þegar hún frumsýndi myndarlegt þyngdartap í spjallþætti Jimmy Fallon, The Tonight Show Starring Jimmy Fallon.
Clarkson virðist þó hvergi nærri hætt að hrista upp í hlutunum og sýndi söngkonan nýja hárgreiðslu í mánudagsþættinum af The Kelly Clarkson Show. Söngkonan skartar nú toppi sem er þó ekki glænýtt útlit fyrir Clarkson. Söngkonan hefur nokkuð reglulega breytt um bæði hárgreiðslu og háralit.