Dansarinn, áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Ástrós Traustadóttir er mikill fagurkeri og tískuunnandi, en á Instagram-reikningi hennar má finna ótal flottar tískumyndir.
Ásamt því að búa til tísku- og lífsstílstengt efni fyrir samfélagsmiðla starfar Ástrós sem danskennari og hefur einnig komið fram í sjónvarpsþáttunum Allir geta dansað og LXS.
Hvernig myndir þú lýsa fatastílnum þínum?
„Ég myndi segja að hann væri mjög klassískur og tímalaus með skandinavísku yfirbragði.“
Hvernig klæðir þú þig dagsdaglega?
„Það getur verið ótrúlega misjanft, en ef ég er eitthvað að brasa þá er það yfirleitt „oversized“ suit-buxur af einhverjum stíl, góð peysa og blazer-jakki yfir. Á þessum árstíma fer ég oft í kápu yfir, en ég elska að stæla kápu yfir blazer-jakka.
Svo get ég líka verið bara í kósígallanum mínum frá Skims á þeim dögum sem ég er heima með dóttur mína þar sem ég er ennþá í orlofi.“
En þegar þú ert að fara eitthvað fínt?
„Örugglega bara svipað, nema þá fer ég í hæla og fínan bol eða skyrtu undir blazer-jakkann. Mér finnst líka gaman að fara í pils, þunnar sokkabuxur og stígvél.“
Hvað er helst að finna í fataskápnum þínum?
„Yfirhafnir, endalaust af yfirhöfnum!“
Fyrir hverju fellur þú oftast?
„Ég fell oftast fyrir blazer-jökkum í góðu sniði.“
Hver eru bestu fatakaupin?
„Að þessu sinni er það örugglega kápan mín frá Stand Studio, en mér finnst hún tímalaus og fullkomin fyrir þennan árstíma.“
En verstu fatakaupin?
„Ég keypti mér skær grænar leður buxur í fyrra sem voru mjög kúl á öllum nema mér held ég.“
Er eitthvað sem þú myndir aldrei fara í?
„Eins og er þá myndi ég aldrei fara í þröngar gallabuxur“
Áttu þér uppáhaldsfylgihlut?
„Það væri annað hvort Yves Saint Laurent taskan mín eða „vintage“ stígvél sem ég keypti í Rauða Krossinum.“
Áttu þér uppáhaldsmerki?
„Source Unknown er í miklu uppáhaldi hjá mér núna og The Frankie Shop. Þessi merki eru alltaf með geggjaðar vörur fyrir haustið og veturinn sem er svona mest megnis af árinu hjá okkur.
Áttu þér uppáhaldsbúðir til að versla í?
„Andrá og GK Reykjavík eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Annars versla í líka mikið í Zöru og Weekday.“
Áttu þér uppáhaldsliti?
„Mosagrænn er klárlega uppáhaldslituinn minn, en annars eru bara allir jarðtónar í miklu uppáhaldi hjá mér og flestar mínar flíkur í þeim litum.“
Hvað er ómissandi í fataskápinn fyrir veturinn?
„Góð klassísk kápa, svört stígvél og „oversized“ prjónapeysa.“
Hvað er á óskalistanum þínum fyrir veturinn?
„Taska frá Polone Paris í brúnum lit.“
Ef peningar væru ekki vandamál, hvað myndir þú kaupa þér?
„Draumurinn er að eignast Kelly-tösku frá Hermés.“
Hver finnst þér vera best klæddi einstaklingurinn í heiminum í dag?
„Hailey Bieber er mín allra uppáhalds þegar kemur að tísku, en undanfarið eru það líka Zoe Kravitz og Rosie Huntington.“