Óskarsverðlaunaleikkonan Jennifer Lawrence segir marga halda að hún hafi farið í fegrunaraðgerðir. Svo er hins vegar ekki. Hún greinir frá ástæðu þess að útlit hennar hefur breyst í viðtali sem hún tók við Kylie Jenner fyrir tímaritið Interview.
Raunveruleikastjarnan Jenner rekur í dag eigið snyrtivörumerki. Hennar einkennismerki eru stórar varir og notaði hún meðal annars snyrtivörur til þess að ná fram útlitinu. Lawrence segir heillandi hvernig snyrtivörur geta breytt útliti fólks.
Óskarsverðlaunaleikkonan kallar förðunarfræðinginn sinn lýtalækni. „Af því að á þeim mánuðum sem ég hef unnið með honum eru allir sannfærðir um að ég hafi farið í augnaðgerð,“ segir Lawrence. „Ég fór ekki í augnaðgerð. Ég er með förðun,“ segist Lawrence segja við fólk.
Jenner hins vegar viðurkennir að hafa farið í fegrunaraðgerðir, þar á meðal látið fylla í varirnar. Gömlum myndum er oft stillt við hlið nýrra mynd af henni og Lawrence hefur sömu sögu að segja.
„Ég er að glíma við það saman. Ég byrjaði 19 ára svo fyrir og eftir myndirnar eru þegar ég var 19 og 30. Ég er bara: „Ég þroskaðist. Meðgönguþyngdin fór af andlitinu og andlitið á mér hefur breyst með aldrinum.“ Fólk heldur að ég hafi farið í nefaðgerð. Ég hef verið með sama nefið allan tímann. Kinnarnar á mér minnkuðu. Takk fyrir að minnast á það,“ segir Lawrence.