Melania Trump, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, var viðstödd minningarathöfn Rosalynn Carter, fyrrverandi forsetafrúar Bandaríkjanna, sem gerð var frá Glenn Memorial kirkju í Atlanta í Georgíu í gærdag.
Trump vakti mikla athygli fyrir klæðaburð sinn en meðal hundruð svartklæddra syrgjenda þá kæddist hún grárri „tweed“ kápu og stuttum kjól, sem mörgum þótti óviðeigandi og ókurteist.
Eiginmaður hennar, Donald Trump, var ekki viðstaddur minningarathöfnina en Trump sat við hlið Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrúar Bandaríkjanna, sem mætti einnig án eiginmanns síns.
Carter, sem lést hinn 19. nóvember síðastliðinn, 96 ára að aldri, verður jarðsungin í dag, miðvikudag.