Það er freistandi að kaupa sér eitthvað fallegt í miðjum jólagjafainnkaupum. Sérstaklega í svartasta skammdeginu. Þá öskra rauð lakkstígvél á okkur og heimta að fá að koma með okkur heim. Það gera líka pallíettubuxur og eyrnalokkar sem stirnir á.
Eitt er víst að manneskja í rauðum glansstígvélum er töluvert líklegri til að lenda í ævintýrum en sú sem fer út í sjoppu á inniskóm. Að kaupa sér einhvern bráðnauðsynlegan óþarfa getur verið hin mesta skemmtun og svo örva kaup á glitrandi varningi skilningarvitin og gleðja hjartað.
Öll tálkvendi þurfa plastkjól. Þessi er úr H&M. Hann kostar 7.990 kr.
Lumiére Graphique- augn skugga pallettan frá Chanel kemur í takmörkuðu upplagi og fæst í Hagkaup.
Fallegur hringur frá Sif Jakobs sem fæst í Meba og kostar 27.900 kr.
Ef þú vilt sigra heiminn þá þarftu að ilma. Hin íslenska Andrea Maack er hér með töfrandi og heillandi ilm sem konur elska að elska. Hann fæst í Madison Ilmhúsi og kostar 18.990 kr.
Ekki vera ósýnileg. Þessi kjóll fæst í Lindex og kostar 12.999 kr
Glitrandi spöng úr Lindex. Hún kostar 4.990 kr.
Silfurtaska frá Diesel. Hún fæst í Gallerí 17 og kostar 75.995 kr.
Eldrautt naglalakk er fyrir þær sem þora. Liturinn 151 í Le Vernis-línunni er eigulegur. Lakkið fæst í Hagkaup.
Svartur jakki er klassískur en þegar hann er kominn með glitrandi ermar þá fer eitthvað að gerast. Þessi er frá Day Birger et Mikkelsen og fæst í Kultur í Kringlunni. Hann kostar 64.995 kr.
Toppur frá Ganni. Hann fæst á Boozt.com og kostar 34.389 kr.
Glansandi buxur eru þarfaþing. Þær fást í Kroll í Kringlunni og kosta 11.995 kr.
Þarftu ekki glansandi jakka? Þessi fæst í Zöru og kostar 13.990 kr.
Perlur setja svip á hversdagsleg föt. Þessi perlufesti færst í Zöru og kostar 3.990 kr.
Þessi kjóll minnir á tálkvendi áttunda áratugarins. Ef þú vilt hleypa þínu innra tálkvendi út gæti þessi kjóll hjálpað þér. Hann fæst í Zöru og kostar 19.995 kr.
Gimsteinaeyrnalokkar frá In Wear. Þeir fást í Companys í Kringlunni og kosta 3.990 kr.
Bolur fyrir fólk með fortíðarþrá. Hann gæti hafa fundist í óskilamunum á Tunglinu sáluga en þessi er þó splunkunýr. Hann fæst í Vero Moda og kostar 4.995 kr
Eru þetta mestu skvísustígvél sem fyrirfinnast á jörðinni? Þau eru frá Costummade og fást hjá Andreu í Hafnarfirði. Þau kosta 69.900 kr.
Silfurbuxur fyrir ævintýraþyrsta. Fást í Júník og kosta 11.990 kr.
The Cher-kjóllinn frá Yeoman er nokkuð sem vel væri hægt að gefa sjálfum sér í jólagjöf. Hann kostar 49.900 kr.
Samsøe-toppur úr pallíettuefni mun framkalla stórkostlegar breytingar á lífi þínu. Hann fæst í versluninni Evu og kostar 19.990 kr.
Samsøe Samsøe-pils er flott eitt og sér en líka með toppnum úr pallíettuefninu.
Það kostar 26.995 kr. og fæst í versluninni Evu. Samsøe
Marc O'Polo-peysa fæst í samnefndri verslun í Kringlunni og kostar 27.900 kr.
Bleikur trefill úr 100% ull mun gjörbreyta fataskápnum og færa hann upp á annað stig. Þessi trefill er frá Boss og fæst í samnefndri verslun í Kringlunni. Hann kostar 14.990 kr.
Bleikir flauelsskór með slaufu passa við allt. Þessir skór eru frá Costum made og kosta 38.900 kr. Þeir fást í Andreu í Hafnarfirði.
Gustav Denmark er vandað og gott danskt
merki sem nýtur vinsælda hjá öllum smörtu
vinkonum okkar á Norðurlöndum. Þessi
kjóll fæst í Mathildu og kostar 39.990 kr.
Pallíettutoppur með ermum er góður
í vetrarkulda. Þessi fæst í Mathildu í
Kringlunni og kostar 54.990 kr.