Ásdís Rán: „Ég klippti mig sjálf“

Ásdís Rán Gunnarsdóttir er nýklippt.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir er nýklippt. Skjáskot/Instagram

Ásdís Rán Gunnarsdóttir, fyrirsæta og þúsundþjalasmiður, er komin með nýja hárgreiðslu. Ásdís Rán sem er enn ljóshærð segir fólk vera forvitið um nýju greiðsluna. Hún hefur nú uppljóstraði því hvernig hún náði fram hárgreiðslunni. 

„Það eru allir að missa sig yfir blessuðu klippingunni minni sem er algjörlega búin að slá öll met! Það rignir inn skilaboðum og fólk stoppar mig allstaðar,“ skrifar Ísdrottningin á Instagram sem er með stutt hár og topp. 

„Sannleikurinn er að ég klippti mig sjálf þannig það á engin hárgreiðslumaður heiðurinn af henni,“ heldur hún áfram en viðurkennir að hún sé reyndar með bakgrunn í hárgreiðslu. Hún er auk þess andlit Redken á Íslandi. 

Bombu-lokkarnir fengu að víkja fyrir tíu árum

Ásdís Rán er ekki óvön því að skipta um hárstíl á þessum árstíma. Fyrir tíu árum lét hún síðu lokkana fjúka. 

„Það er bara kom­in tími til að breyta smá til og leyfa bombu-lokk­un­um að víkja fyr­ir klass­ísk­ara lúkki þar sem ég er langt kom­in í að leggja fyr­ir­sætu skóna á hill­una og byrjuð að ein­beita mér að öðrum mál­um. Ég á yfir 30 forsíður, þúsund­ir mynda og sjón­varpsþætti að baki sem birst hafa víðsveg­ar um Evr­ópu þannig að ég er bara sátt með minn fer­il á þessu sviði svona sam­hliða móður­hlut­verk­inu. Ég er að sjálf­sögðu ekki al­veg hætt en já ég er að fara aðeins út í klass­ísk­ari ímynd með breytt­um áhersl­um,“ seg­ir Ásdís Rán Gunn­ars­dótt­ir í viðtali við Smartland í desember árið 2013. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál