Stjörnurnar í Hollywood skörtuðu sínu allra besta þegar þær mættu á galakvöld um helgina. Stífar reglur giltu um klæðaburð en allar dömurnar voru í einstaklega fallegum síðkjólum. Kjólarnir minntu helst á kjólana á Óskarsverðlaunahátíðinni.
Þrátt fyrir reglurnar tóku sumar stjörnur áhættu, sýndu hold, léku sér með liti og form. Aðrar voru í hefðbundnari kjólum. Margir kjólar áttu það sameiginlegt að minna á að jólin eru handan við hornið.
Leikkonan Natalie Portman skein skært í síðkjól frá Dior með rauðan jólalegan varalit. Leikkonan Eva Longoria var líka í hátíðarstemningu í glitrandi kjól frá ítalska tískuhúsinu. Dolce & Gabbana. Fyrirsætan Kendall Jenner minnti á jólin í rauðum síðum kjól frá Fendi. Kjóllinn var með einskonar borða á hliðinni svo ekki var hægt að hugsa um annað en fallegan rauðan jólapakka.
Hér fyrir neðan má sjá stjörnurnar skína á rauða dreglinum.
Karlie Kloss mætti í hönnun frá Schiaparelli.
AFP
Leikkonan Natalie Portman í kjól frá Dior.
AFP
Fyrirsætan Kendall Jenner í kjól frá Fendi.
AFP
Angela Bassett í rauðum kjól með hettu frá Schiaparelli.
AFP
Fyrirsætan Chrissy Teigen í hátískukjól frá Tony Ward.
AFP
Jodie Turner-Smith tók pláss á rauða dreglinum.
AFP
Söngkonan Selena Gomez í kjól frá Valentino.
AFP
Leikkonan Zoë Kravitz í þröngum kjól frá Saint Laurent.
AFP
Leikkonan Natasha Lyonne var í hvítum kjól og með axlabönd.
AFP
Fyrirsætan Kaia Jordan Gerber var í kjól frá Chanel.
AFP
Sjónvarpsstjarnan Oprah Winfrey í Dolce & Gabbana.
AFP
Leikkonan Rashida Jones í hvítum kjól og í hvítum jakka.
AFP
Leikkonan Eva Longoria í Dolce & Gabbana.
AFP
Leikkonan Julia Garner vakti athygli í gulum kjól frá Phillip Lim.
AFP
Leikkonan Chloë Grace Moretz var í bláum kjól með belti Louis Vuitton.
AFP
Leikkonan Julianne Moore var í klassískum grænum kjól.
AFP
Leikkonan Demi Moore í kjól frá Tamara Ralph.
AFP
Leikkonan Nicola Peltz var í ljósbleikum kjól.
AFP
Leikkonan Lupita Nyong'o í kjól frá Chanel.
AFP