Önnur helgi aðventunnar er fram undan og því eru margir komnir í jólaskap. Hvort sem þú ætlar að njóta helgarinnar uppi í sófa fyrir framan uppáhaldsjólamyndina þína, í skíðabrekkunni, á jólatónleikum eða heima að skreyta þá á óskalisti vikunnar eftir að koma þér skemmtilega á óvart.
Á óskalista vikunnar finnur þú tíu vörur sem munu gera aðventuna enn betri, allt frá notalegum náttfötum og hátíðlegu skarti yfir í vistvæn jólatré og handgert jólaskraut frá Danmörku!
Loðhúfur eru klassískar og tímalausar, en þar að auki henta þær afar vel í kuldanum hér á Íslandi. Að undanförnu hafa tískudrottningar landsins verið að missa sig yfir loðhúfum, enda eru þær fullkomin viðbót í fataskápinn fyrir veturinn.
Á aðventunni er fátt jafn notalegt og að koma sér vel fyrir uppi í sófa með fjölskyldunni eða vinunum og horfa á góða jólamynd. Þá er mikilvægt að eiga flott og þægileg náttföt!
Þennan tryllta topp hannaði íslenski fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir, en hann mun poppa upp hvaða útlit sem er.
Það er svo gaman að bæta nýju og fallegu jólaskrauti á jólatréð. Mikill sjarmi er yfir þessu skrauti eftir danska hönnuðinn Lars Rank, en það er handgert úr postulíni og því er hvert stykki einstakt.
Þessi aðsniðni vetrarjakki frá Aim'n er ekki bara hlýr heldur líka fáránlega flottur. Hann er úr jólalínu merkisins og er fullkominn í skíðabrekkurnar í vetur eða bara í hvaða útivist sem er!
Þessi skemmtilegu tré eru handsmíðuð af Gunnari Valdimarssyni. Þau koma í nokkrum stærðum og bjóða upp á ótal möguleika þegar kemur að skreytingum!
Þessi fallega skyrta er klasssk og á heima í öllum fataskápum. Sniðið á henni er skemmtilegt og svo er hún bundin saman að framan með fallegum slaufum sem gefa henni líflegt og hátíðlegt tvist!
Það stefnir allt í að silfrið verði það allra heitasta um jólin og áramótin. Þessir hátíðlegu eyrnalokkar frá Deepa Gurnani munu án efa setja punktinn yfir i-ið á hvaða lúkki sem er.
Það er skemmtilegt að leika sér með mismunandi hárgreiðslur yfir hátíðirnar, en hárlengingarnar frá Glam Seamless eru fullkomnar til þess. Þær koma í ýmsum litum, gerðum og síddum.
Það er nauðsynlegt að eiga þægilega peysu yfir hátíðirnar sem auðvelt er að skella sér í þegar maður er kominn með nóg af glimmer- og pallíettukjólnum!