Dagarnir eru extra fljótir að líða í desember og nú eru aðeins þrír dagar í jólin. Á óskalista vikunnar finnur þú fallegar vörur sem munu gera aðfangadaginn enn betri – allt frá notalegum jólanáttfötum og mjúkum baðslopp yfir í tryllt jólastígvél og klassískan jólakjól.
Það er fátt jafn notalegt og að skella sér í ný jólanáttföt á aðfangadagskvöld. Ef þú vilt náttföt sem eru jólaleg en geta samt verið notuð allan ársins hring þá eru þetta náttfatasett með fallegum rauðum hjörtum fullkomið.
Á dögunum kom út nýr ilmur úr kertalínu Haf Store, en hann ber nafnið Ylur og þykir tilvalinn fyrir hátíðirnar. Kertið gleður þó ekki einungis lyktarskynið heldur líka augað. Það er því tilvalið að kveikja á því á aðfangadag og leyfa ljúfum ilminum að faðma heimilið.
Allir fataskápar ættu að innihalda klassískan svartan síðkjól eins og þennan. Þetta er kjóllinn sem þú teygir þig í klukkan fimm á aðfangadag þegar allt er á seinustu stundu því þau veist að hann klikkar ekki – svo er hægt að dressa hann upp og niður með skarti og skóm.
Margir nýta þorláksmessu í að skreyta jólatréð og hafa því enn nokkra daga til að klára að græja skraut á tréð. Þessar jólaskreytingar eru frá sænska hönnunarfyrirtækinu Dbkd og gefa aðfangadeginum skandinavískt og minimalískt yfirbragð.
Þú finnur varla fullkomnari jólastígvél en þessi frá íslenska vörumerkinu Kalda. Þau eru fagurrauð með passlega háum hæl. Hönnunin er stílhrein en þó með smáatriðum sem fanga augað – akkúrat það sem við viljum á aðfangadag!
Það má lika hafa það notalegt á aðfangadag og þess vegna er ómissandi að eiga góðan baðslopp. Þessi sloppur er extra mjúkur úr lífrænt vottaðri bómull, og svo er hann bara svo fallegur – fullkominn eftir jólabaðið!
Fallegur borðbúnaður gerir góðan mat enn betri! Þessi fallegi kökustandur frá Serax setur punktinn yfir i-ið á aðfangadagskvöld, en hann kemur bæði í svörtu og hvítu.
Vínrauður hefur tekið yfir tískuheiminn á undanförnum vikum og þykir það allra heitasta í dag. Liturinn er fullkominn fyrir hátíðirnar, enda jólalegur og afar fallegur. Það er því tilvalið að skella sér í þessa fallegu blússu á aðfangadag, en hana er hægt að dressa upp og niður á auðveldan máta.
Aðdraganda jóla fylgir oft mikið stress. Svefninn fer oftast aðeins aftar í forgangsröðunina og húðrútínan jafnvel líka. Það er því tilvalið að setja á sig Ultimune Eye Power Infusing Eye Concentrate eftir jólabaðið á aðfangadag, en kremið hjálpar augnsvæðinu að vinna gegn skemmdum og veitir því ljómandi og bjart útlit.
Það er nauðsynlegt að eiga hlýjan og fallegan jakka til að henda yfir sig á aðfangadag þegar síðustu gjöfunum er skutlað út. Þessi jakki er fullkominn fyrir veturinn og passar við flest – meira að segja glimmer og pallíettur!