Eftir tveggja vikna partípásu eftir áramótin styttist óðum í þorrablótin sem margir hafa beðið spenntir eftir lengi. Á óskalista vikunnar finnur þú því tíu vörur sem munu gera þorrablótið að enn betri upplifun, bæði fyrir, á meðan og á eftir!
Undirbúningur fyrir þorrablót er afar mikilvægur. Best er að byrja daginn áður og tryggja góðan nætursvefn, en það eru ekki allir sem ná að byrja undirbúniginn svo snemma. Þá er lykilatriði að taka góða lögn samdægurs og notaleg svefngríma því ómissandi!
Það er mikið stuð á þorrablótum og því þarf að leggja extra vinnu í að undirbúa húðina fyrir förðunina svo hún haldist falleg allt kvöldið. Þessi vara gerir alla vinnuna fyrir þig, en hún virkar samstundis og dregur úr sjáanlegum öldrunarmerkjum á húðinni auk þess að kafna áferð húðarinnar og draga úr sýnileika svitahola og öra – fullkomið undir farðann!
Það getur verið snúið að finna hinn fullkomna kjól fyrir þorrablótið. Þessi kjóll tikkar hins vegar í ansi mörg box, en hann er stílhreinn en samt með skemmtilegum smáatriðum sem grípa augað. Svo er auðveldlega hægt að nota hann á hina ýmsu viðburði framundan!
Eftir jólin og áramótin eru sumir hreinlega komnir með alveg nóg af því að vera í kjólum. Engar áhyggjur – þessi bolur er fullkominn fyrir þorrablótið! Hann passar við allt og það er auðvelt að dressa hann upp og niður með skarti og fylgihlutum.
Ef þú vilt taka lúkkið einu skrefi lengra þá er leðurkápa málið. Leðrið hefur verið að gera allt gjörsamlega vitlaust undanfarið, en vinsældirnar virðast bara vera að aukast og því hittir þessi kápa beint í mark!
Þú þarft enga mannbrodda á þessum hælum!
Fallegt skart getur gert mikið fyrir heildarlúkkið, en þetta fallega hálsmen frá by lovisa er fullkomið fyrir kvöldið.
Flott taska er ómissandi á þorrablótið því einhversstaðar verður þú að geyma símann og glossið – og þá er ekki verra að geta hent því ofan í alvöru partítösku!
Þegar stuðið er búið er fátt mikilvægara en að taka af sér farðann, enda vitum við að það fer alls ekki vel með húðina að sofa með farða! Þá kemur þessi mildi farðahreinsir að góðum notum, en hann fjarlægir ekki einungis farðann heldur hreinsar hann húðina og tónar hana í leiðinni.
Síðasta skref kvöldsins er að koma sér eins vel fyrir og hægt er uppi í rúmi, en þá er gott að vera með notaleg náttföt tilbúin. Náttfötin nýtast líka sérlega vel daginn eftir, sérstaklega ef það var mjög mikið stuð!