Poppdrottningin Beyoncé lætur ekki sjá sig hvar sem er. Hún gerði þó undantekningu í vikunni þegar hún mætti á tískusýningu Luar á tískuvikunni í New York.
Beyoncé var klædd í gráan og silfraðan jakka og var í uppháum stígvélum í stíl. Fötin voru frá Gaurav Gupta. Stjarnan var einnig með kúrekahatt og sólgleraugu eins og alvöru stórstjarna. Til að gleyma ekki Luar var hún með silfurlitaða tösku frá merkinu.
Við hlið Byeoncé sat móðir hennar Tina Knwoles en á fremsta bekk var einnig systir hennar, tónlistarkonan Solange. Sonur Solange gekk tískupallinn fyrir Luar sem var ástæða þess að öll fjölskyldan sat á fremsta bekk.
Það er eftirsótt að sitja á fremsta bakk eins og sjá má á myndum frá öðrum tískusýningum á tískuvikunni í New York sem var að ljúka.