Dreymir um mánuð í Japan

Kristín Mjöll Bjarnad. Johnsen er listakona sem finnst gaman að …
Kristín Mjöll Bjarnad. Johnsen er listakona sem finnst gaman að rannsaka hið mannlega. Ljósmynd/Antje Taiga Jandrig

Kristín Mjöll Bjarnad. Johnsen, listakona og kennari, er á fullu í hreiðurgerð heima hjá sér, en hún á von á frumburðinum í vor með sambýlismanni sínum Guðna Má Grétarssyni. Myndlistin er þó aldrei langt undan og um þessar mundir er hún með nokkrar myndir til sýnis í Andrá Reykjavík úr seríu sem kallast Skrúður.

Hvað veitir þér innblástur?

„Það er svo ótrúlega margt. Yfirleitt hið mannlega og það breyska og samskipti manna við tækni. Mér finnst gaman að rannsaka hið mannlega í tæknilegu samhengi.“

Verk úr seríunni Skrúður. Myndina vann Kristín síðasta sumar og …
Verk úr seríunni Skrúður. Myndina vann Kristín síðasta sumar og haust. Ljósmynd/Aðsend

Hvað borðar þú í morgunmat?

„Svart kaffi og nánast alltaf hafragraut með chia-fræum, smá hörfræum, kókoskanil og kókosmjólk út á. Stundum bæti ég banana eða epli út á líka.“

Áttu uppáhaldsflík?

„Dúnúlpuna mína frá Axel Arigato úr Andrá Reykjavík. Ég fékk hana í afmælisgjöf frá foreldrum mínum og ég hef varla farið úr henni síðan ég fékk hana. Svo hlý og góð og ekki skemmir fyrir hvað hún er flott! Næst á eftir væru það moonboots-in mín, sem ég keypti líka einmitt í Andrá.“

Hvaða snyrtivöru notar þú mest?

„Uppáhaldssnyrtivaran er klárlega orkídeu- og jasmín-andlitsolían frá Herbivore.“

Andlitsolía frá Herbivore.
Andlitsolía frá Herbivore.

Áttu uppáhaldshönnuð eða merki?

„Dilara Findikoglu finnst mér vera að gera spennandi hluti, Iris Van Herpen er lika alltaf í uppáhaldi.“

Doja Cat í fötum frá Dilara Findikoglu.
Doja Cat í fötum frá Dilara Findikoglu. AFP/ Robyn BECK
Grimes í hönnun Iris van Herpen.
Grimes í hönnun Iris van Herpen. AFP

En listamann?

„Mér finnst listamenn sem vinna þverfaglega eða blanda miðlum saman spennandi. Refik Anadol er búinn að vera í uppáhaldi undanfarið. Hann vinnur mikið með arkitektúr og gervigreind í innsetningum.“

Áttu uppáhaldsborg og af hverju?

„Róm á Ítalíu. Hún hefur allt; arkitektúrinn, menninguna, matinn, fólkið, veðrið, söfnin og söguna. Finnst hún alveg mögnuð.“

Róm er fjölbreytt og skemmtileg borg.
Róm er fjölbreytt og skemmtileg borg. Ljósmynd/Unsplash.com/Michele Bitetto

Hvert dreymir þig um að ferðast?

„Til Japans! Er með sér ferðamöppu á Instagram tileinkaða því ferðalagi með hinum ýmsum stöðum sem gaman væri að heimsækja þar. Langar að verja að lágmarki mánuði þar og kynnast menningu og þjóð.“

Kristínu langar að kynnast japanskri menningu og þjóð.
Kristínu langar að kynnast japanskri menningu og þjóð. Ljósmynd/Unslpash.com/David Edelstein

Hvaða óþarfa keyptir þú þér síðast?

„Ég leyfi mér eiginlega bara að kaupa barnadót núna og er búin að kaupa einhver ósköp þar, ætli það sé ekki eitthvað þar sem mun enda ónotað í Barnaloppunni.“

Hvað ertu að horfa á um þessar mundir?

„Ég fór á Poor Things í bíó í síðustu viku, sem var mjög eftirminnileg. Mjög mikið til að taka inn og hugsa um og mikið fallegt fyrir augað í henni.“

Kvikmyndin Poor Things var falleg fyrir augað.
Kvikmyndin Poor Things var falleg fyrir augað.

Hvaða bók er á náttborðinu þínu?

„Ég var að klára Project Hail Mary eftir Andy Weir, hún var frábær. Sá að það á að gera mynd upp úr henni, hlakka til að sjá hana þegar að því kemur.“

Kristín er nýbúin að lesa bókina Project Hail Mary.
Kristín er nýbúin að lesa bókina Project Hail Mary.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál