Göturnar á höfuðborgarsvæðinu eru að verða auðar þar sem mesti snjórinn er farinn og það er sól í kortunum – það er ekki svo galið að upplifa smá vorfiðring þótt það sé bara febrúar.
Á óskalista vikunnar finnur þú tíu hluti sem munu hjálpa þér að komast í rétta gírinn fyrir vorið, því eins og svo oft áður má búast við því að veturinn breytist í vor á einni nóttu og um leið gleymum við hve kaldur og dimmur veturinn var. Það má því alveg fara að undirbúa sig!
Það verður að vera að minnsta kosti ein góð gallaskyrta í öllum fataskápum í vor. Þessi fallega skyrta er eftir hönnuðinn Halldóru Sif og hittir beint í mark, en hún passar líka vel inn í kúrekatískuna sem hefur verið að gera allt vitlaust um allan heim.
Það er tilhlökkunarefni hjá mörgum að uppfæra fataskápinn í takt við hækkandi hitatölur. Það eru ákveðin tímamót þegar derhúfan er tekin upp og hlýja ullarhúfan tekin niður, en það er þó mikilvægt að geyma hana ekkert allt of langt í burtu – við búum ennþá á Íslandi þó það sé sól!
Það er eitthvað ótrúlega notalegt við að skella sér í sund á vorin og leyfa sólinni að skína á kroppinn í hlýju vatninu. Flottur sundbolur gerir upplifunina enn betri! Þessi sundbolur er í geggjuðu sniði og með fallegum smáatriðum – svo er liturinn líka trylltur!
Um mánaðarmótin febrúar/mars fer að verða þreytt að henda sér í sömu kuldaskónna í þúsundasta skipti í röð. Góðu fréttirnar eru samt að það styttist óðum í hlýrri daga og þegar þeir koma er um að gera að nýta þá til fulls og skella sér í tryllta hæla!
Heimilið má líka fá uppfærslu fyrir vorið – til dæmis með þessari fallegu blómamynd eftir íslensku hönnunar- og prentstofuna Brotið blað.
Þessi jakki er fullkominn fyrir vorið – hann er hvorki of sumarlegur né vetrarlegur en hentar þó allan ársins hring. Er hægt að biðja um eitthvað meira?
Það er vorfílingur í þessum dásamlega líkamsskrúbb frá Keihl's, en hann gerir húðina silkimjúka en er samt sem áður mildur og hentar því öllum húðgerðum – líka viðkvæmri húð!
Þessi guðdómlegi kjóll frá Stine Goya tikkar í svo mörg box – sniðið er flott, blómamynstrið er fallegt, litirnir tóna vel saman og svo er hann opinn í bakið sem setur án efa punktinn yfir i-ið!
Þú veist að það er komið vor þegar hún dregur ljósu buxurnar fram í auknu mæli, en þessar cargo-buxur eru bæði töffaralegar og þægilegar og því fullkomnar fyrir vorið!