Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir er ein best klædda kona landsins, enda klæðist oft fötum frá Chanel. Þegar kemur að skóvali er eftirtektarvert að Laufey er oft í ballerínuskóm eða jafnvel skóm með mjög litlum hælum.
Flatbotna ballerínuskór
Laufey er oft í ballerínuskór eða öðrum settlegum flatbotnaskóm. Tegundin passar fyrir alla, ungar konur sem aldnar. Ballerínuskór eru til að mynda góðir fyrir fermingarstúlkur sem vilja sleppa því að vera í allt of háum hælum í fyrsta skipti. Þær geta stolið fáguðum stíl Laufeyjar og samt verið afar sparilegar.
Klassískir ballerínuskór frá Billi Bi með glansandi tá og penni slaufu. Þessir fást í GS skóm og kosta 23.196 kr.
Gylltir skór í anda Laufeyjar frá Vagabond. Þessir fást í Skór.is og kosta 14.995 kr.
Ballerínuskór eins og Chanel vill hafa þá. Þessir fást í Skór.is og kosta 17.995 kr.
Glansandi ballerínuskór með bandi yfir ristina frá Sam Edelman. Þessir fást í Apríl skór og kosta 23.990 kr.
Töff skór og litlir hælar
Þegar Laufey er í hælaskóm eru þeir oft með litlum hælum. Stundum eru þeir rúnaðir eins og ballerínuskórnir en hún á líka aðeins toffaralegri skó.
Lítill hæll er málið.
Skjáskot/Instagram
Klassískir og fallegir skór með litlum hæl. Þessir skór fást á vefsíðunni Skór.is og kosta 19.995 kr.
Fallegir skór með litlum hæl frá Billi Bi. Sylgjan gerir skóna töffaralega. Skórnir fást í GS skóm og kosta 35.995 kr.
Stígvél fyrir rokkara
Þrátt fyrir ljúfa tóna er Laufey líka rokkari. Það sést þegar hún gengur í mótorhjólastígvélum. Það góða við stígvélin er að þau eru sjaldan með háum hæl.
Laufey er líka rokkari. Hér er hún í kjól frá Hildi Yeoman og mótorhjólastígvélum frá Pavement sem fást í GS skóm.
Skjáskot/Instagram
Þessi leðurstígvél frá Eytys eru eins og alvöru mótorhjólastígvél. Þau fást í Húrra Reykjavík og kosta 67.990 kr.