Ítalski fatahönnuðurinn Pierpaolo Piccioli tilkynnti á dögunum að hann ætlaði að láta af störfum sem listrænn stjórnandi hjá tískuhúsinu Valentino eftir 25 ára starf. Piccioli hefur hannað marga eftirminnilegar flíkur á tíma sínum hjá Valentino.
Piccioli tók við sem listrænn stjórnandi Valentino árið 2016 en þá hafði hann sinnst starfinu ásamt Mariu Grazia Chiuri í nokkur ár. Merkið hefur verið í uppáhaldi hjá stjörnunum og skiptir ekki máli hvort þær eru að fara gifta sig, mæta á Óskarsverðlaunin eða hinn vinsæla viðburð Met Gala.
Valentino hefur hannað margar bleikar flíkur á undanförnum árum og klæddist ítalska söngkonan Laura Pausini bleikum flíkum frá Valentino eftirminnilega þegar hún kynnti Eurovision í Tórínó árið 2022.
Hér fyrir neðan má sjá margar eftirminnilegar flíkur frá Valentino
Leikkonan Anne Hathaway í Velentino.
AFP
Rihanna í hvítum fötum frá Velentino á Met Gala árið 2023.
AFP/ANGELA WEISS
Florence Pugh á Met Gala árið 2023. Kjóllinn að sjálfsögðu frá Velentino.
AFP/ANGELA WEISS
Zendaya í Velentino á rauða dreglinum í fyrra.
AFP/VALERIE MACON
Naomi Campbell klæddist silfruðum kjól frá Velentino á tískuverðlaunum árið 2022.
AFP
Carey Mulligan á Óskarsverðlaunahátíðinni aríð 2021.
AFP
Gemma Chan í bleikum kjól frá Velentino á á Óskarnum árið 2019.
AFP/Frazer Harrison
Lady Gaga klæddist eftirminnilegum bleikum kjól frá Velentino þegar kvikmyndin A Star is Born var frumsýnd.
AFP/Vincenzo PINTO
Emma Stone með Golden Globestyttuna í kjól frá Velentino.
AFP
Margot Robbie í Barbie-kjól frá Velentino.
AFP/JON KOPALOFF