Þótt veðurguðirnir hafi ekki verið með okkur í liði undanfarna daga þá eigum við von á aðeins sumarlegri dögum í lok vikunnar. Það er því tilvalið að nýta tímann og uppfæra fataskápinn fyrir sólríkari daga – á óskalista vikunnar finnur þú allt sem þú þarft í það!
Það er ekki ólíklegt að klútar, líkt og Halla Tómasardóttir nýkjörinn forseti Íslands skartaði í kosningarbaráttunni, muni setja svip sinn á tískustrauma sumarsins. Klútar eru nefnilega frábær viðbót við fataskápinn og geta poppað upp hvaða útlit sem er.
Við virðumst ekki ætla að fá nóg af hlébarðamynstrinu og eru vinsældirnar bara að aukast. Það sem gerir mynstrið svo klæðilegt og praktískt eru litirnir, en þeir eru hlutlausir og passa við flest og því auðvelt að leyfa sér að hafa gaman og fjárfesta í skemmtilegri mynstraðri flík!
Flottir hlýralausir bolir eru ómissandi í fataskápinn fyrir sumarið! Dressið getur einfaldlega ekki klikkað ef það inniheldur fallegan bol í sumarlegum lit.
Í ár virðast heitustu sumarkjólarnir vera hvítir eða ljósir, síðir og í víðu sniði. Við fögnum því og njótum þess hve auðvelt er að dressa slíka kjóla upp og niður!
Litríkir skór hafa verið að gera allt vitlaust í tískuheiminum að undanförnu, en allt stefnir í að þeir verði það allra heitast í sumar og þá er bara ein regla – því litríkari, því betri!
Það þurfa allir að eiga fallega gollu í fataskápnum, enda flík sem auðvelt er að henda yfir sig og þá sérstaklega þegar hún er svona falleg eins og þessi golla frá SUNCOO.
Sannkallað hattaæði hefur tekið yfir tískuheiminn og það verða hreinlega allir að eignast einn góðan stráhatt í sumar!
Skartgripir setja oftar en ekki punktinn yfir i-ið þegar kemur að heildarútlitinu, en í sumar virðast glitrandi og litríkir skartgripir vera aðal málið!
Það hljómar kannski skringilega en „síðar“ stuttbuxur, þ.e. sem ná næstum því niður á hné eða rétt yfir hnén, eru í tísku núna!
Hverjum líkar ekki við falleg sumarblóm? Nú getur þú borið eitt slíkt í hárinu og gert dressið enn sumarlegra!