10 íslenskir hlutir sem fagurkera dreymir um

Á óskalista vikunnar er íslenskum hönnuðum fagnað!
Á óskalista vikunnar er íslenskum hönnuðum fagnað! Samsett mynd

Þjóðhátíðardagur Íslendinga verður haldinn hátíðlegur á 17. júní næstkomandi. Það er því vel við hæfi að fagna íslenskri hönnun á óskalista vikunnar, en þar finnur þú tíu spennandi vörur eftir íslenska hönnuði sem tengja má við Ísland og íslenska menningu á einn eða annan hátt. 

Ómissandi í íslensku veðurfari!

Við vitum það manna best að veðrið á Íslandi getur verið óútreiknanlegt, líka á sumrin. Þá er gott að eiga flík sem auðvelt er að henda yfir sig og veitir hlýju – og ekki verra að það sé íslensk hönnun! 

Ullarsjal fæst hjá As We Grow og kostar 39.900 krónur.
Ullarsjal fæst hjá As We Grow og kostar 39.900 krónur. Ljósmynd/Aswegrow.is

Heitasta tískutrendið!

Slæður og klútar eru heitasta tískutrendið um þessar mundir eftir að Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands, kom þeim á kortið í kosningarbaráttunni. Þessa fögru silkislæðu prýða teikningar af plöntum sem finnast í íslensku flórunni.

Silkiklútur fæst hjá Morra og kostar 17.900 krónur.
Silkiklútur fæst hjá Morra og kostar 17.900 krónur. Ljósmynd/Morra.is

Vasi úr eldfjallaösku!

Vasar gerast varla meira íslenskir en þessi frá Kerrvk, en hann gleður ekki bara augað heldur er hann handgerður úr postulíni og eldfjallaösku!

Lavala vasi fæst hjá Kerrvk. Hann kemur í tveimur stærðum …
Lavala vasi fæst hjá Kerrvk. Hann kemur í tveimur stærðum og kostar frá 6.000 til 12.000 krónur. Skjáskot/Instagram

Draumur í ilmvatnsflösku!

Það þarf ekki að sannfæra þá sem vita hvernig íslenska sumarið lyktar um að þessi ilmur sé góður, þeir bara vita það! Ilmurinn er samstarfsverkefni 66° Norður og Fischersund og er innblásin af íslenskri náttúru.

Ilmvatn fæst hjá Fischersund og kostar 26.900 krónur.
Ilmvatn fæst hjá Fischersund og kostar 26.900 krónur. Ljósmynd/Fischersund.com

Sundbolur sumarsins!

Á Íslandi ríkir mikil sundmenning og því þurfa allir Íslendingar að eiga góðan sundfatnað, sérstaklega fyrir sumarið! Þessi tryllti sundbolur er frá íslenska merkinu Swimslow og kallast Laugaskarð eins og sundlaugin í Hveragerði sem margir halda upp á.

Sundbolur fæst hjá Swimslow og kostar 36.700 krónur.
Sundbolur fæst hjá Swimslow og kostar 36.700 krónur. Ljósmynd/Swimslow.com

Staðalbúnaður í íslenska eldhúsið!

Það ættu allir að eiga eina klassíska pönnukökupönnu í eldhúsinu til að geta töfrað fram hinar ómótstæðilegu íslensku pönnukökur, en að mati margra eru þær ómissandi hluti af 17. júní!

Íslensk pönnukökupanna fæst hjá Bast og kostar 12.995 krónur.
Íslensk pönnukökupanna fæst hjá Bast og kostar 12.995 krónur. Ljósmynd/Bast.is

Nýi íslenski fáninn?

Þetta skemmtilega verk tengja eflaust margir við, enda ekki hægt að þræta fyrir það að hér á Íslandi sé kalt, dýrt og guðdómlega fallegt að vera. Verkið kallast Nýi íslenski fáninn og er eftir Margréti Bjarnadóttur. 

Verk eftir Margréti Bjarnadóttur fæst hjá Listval Gallery og kostar …
Verk eftir Margréti Bjarnadóttur fæst hjá Listval Gallery og kostar 105.000 krónur. Ljósmynd/Listval.is

Peysuveður!

Ólíkt mörgum öðrum stöðum í heiminum þá er peysuveður á Íslandi á sumrin frekar en á haustin. Það er alltaf jafn gaman að eiga góða peysu sem er í senn hlý og falleg, en þessi frá Farmers Market er með fallegu mynstri sem gleður sannarlega augað. 

Hlý peysa fæst hjá Farmers Market og kostar 42.500 krónur.
Hlý peysa fæst hjá Farmers Market og kostar 42.500 krónur. Ljósmynd/Farmersmarket.is

Land elds og íss!

Margir íslenskir hönnuðir sækja innblástur í landið okkar enda býr það yfir ómældri fegurð. Hér má sjá afar fallegan hring sem ber heitir Jökull og er úr línunni Eldur og Ís frá skartgripamerkinu Sign.

Jökull hringur fæst hjá Sign og kostar 21.900 krónur.
Jökull hringur fæst hjá Sign og kostar 21.900 krónur. Ljósmynd/Sign.is

Kröftugur og ljúfur!

Ilmkertið Stormur frá URÐ er innblásinn af vetrinum og kröftugum veðrabreytingum þess árstíma, en hann veitir hlýju og hugarró hvernig sem viðrar. 

Ilmkerti fæst hjá URÐ og kostar 6.450 krónur.
Ilmkerti fæst hjá URÐ og kostar 6.450 krónur. Ljósmynd/Urd.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda