Chanel-jakkinn með breyttu sniði og hnésíð pils áberandi

Glæsileikinn var allsráðandi í dag þegar franska tískuhúsið Chanel kynnti …
Glæsileikinn var allsráðandi í dag þegar franska tískuhúsið Chanel kynnti haust- og vetrarlínu sína. Ljósmynd/Chanel

Óperuhúsið í París, Palais Garnier, skartaði sínu fegursta í dag þegar haust- og vetrarlína Chanel var kynnt. Óperuhúsið var opnað 5. janúar 1875 og býr það yfir einstökum töfrum. Þegar það var opnað á sínum tíma var það helsti samkomustaður elítu Parísarborgar og fóru broddborgarar þess tíma í óperuna nokkrum sinnum í viku. Þó ekki bara til að verða fyrir hughrifun þess sem fram fór á sviðinu heldur til að hitta mann og annan í glæsilegum salarkynninum óperuhússins. 

Á sýningu Chanel mátti sjá 46 dress sem búið var að nosta við á allan hátt. Í raun var hvert stykki sem sýnt var eins og listaverk. Það er ljóst að tískulega séð er gott haust og góður vetur í vændum.

Hinn klassíski Chanel-jakki hefur löngum verið eftirsóttur en í þessari línu mátti hann sjá örlítið breyttu snið. Víðara hálsmál og jafnvel svolítið púff fyrir neðan mitti veitir tískuunnendum innblástur. Jakkarnir í línunni minntu töluvert á tískuna sem ríkti í kringum 1990 og voru hnésíð pils áberandi en slík pils voru líka fyrirferðarmikil í línunni. 

Mikið er lagt í saumaskap og nostrað við hvert einasta stykki. Þess má milli mátti sjá skikkjur og síða kjóla sem eiga án efa eftir að gera gott mót á góðgerðarsamkomum og á rauðum dreglum komandi vetrar. 

Fjólubláa dragtin sker sig úr.
Fjólubláa dragtin sker sig úr. Ljósmynd/Chanel
Hér má sjá pífur liggja niður eftir framstykkinu.
Hér má sjá pífur liggja niður eftir framstykkinu. Ljósmynd/Chanel
Áhersla á mittislínuna er sterk.
Áhersla á mittislínuna er sterk. Ljósmynd/Chanel
Hér er búið að bródera brjóststykkið með fallegu munstri.
Hér er búið að bródera brjóststykkið með fallegu munstri. Ljósmynd/Chanel
Hvít slaufa fer vel við hvítan kjól.
Hvít slaufa fer vel við hvítan kjól. Ljósmynd/Chanel
Hér er skikkja með pífum og er burðurinn í efninu …
Hér er skikkja með pífum og er burðurinn í efninu temmilegur. Ljósmynd/Chanel
Hér má sjá hinn klassíska Chanel-jakka með rúnnuðu hálsmáli og …
Hér má sjá hinn klassíska Chanel-jakka með rúnnuðu hálsmáli og bróderuðum kanti. Ljósmynd/Chanel
Þessi fjólubláa pilsdragt er eiguleg, tvíhneppt og elegant.
Þessi fjólubláa pilsdragt er eiguleg, tvíhneppt og elegant. Ljósmynd/Chanel
Hér er búið að setja standkraga á hinn klassíska Chanel-jakka …
Hér er búið að setja standkraga á hinn klassíska Chanel-jakka sem er vandlega skreyttur. Ljósmynd/Chanel
Hér er búið að handsauma í efnið á listrænan hátt.
Hér er búið að handsauma í efnið á listrænan hátt. Ljósmynd/Chanel
Rúnnuð hálsmál eru áberandi í línunni.
Rúnnuð hálsmál eru áberandi í línunni. Ljósmynd/Chanel
Hér er komið V-hálsmál á Chanel-jakkann.
Hér er komið V-hálsmál á Chanel-jakkann. Ljósmynd/Chanel
Hér er rúnnaður kragi settur yfir klassískan jakka.
Hér er rúnnaður kragi settur yfir klassískan jakka. Ljósmynd/Chanel
Hér er bróderaður rúnnaður kantur á hálsmáli og er sama …
Hér er bróderaður rúnnaður kantur á hálsmáli og er sama efni notað á ermar og í faldinn á jakkanum. Ljósmynd/Chanel
Jakki með rúnnuðu hálsmáli í munstruðu ullarefni.
Jakki með rúnnuðu hálsmáli í munstruðu ullarefni. Ljósmynd/Chanel
Að klæðast skykkju er góð hugmynd. Jafnvel þótt þú sért …
Að klæðast skykkju er góð hugmynd. Jafnvel þótt þú sért í sundbol innanundir. Ljósmynd/Chanel
Rúnnað hálsmál er ekki bara áberandi á jökkunum í línunni …
Rúnnað hálsmál er ekki bara áberandi á jökkunum í línunni heldur líka í toppum. Ljósmynd/Chanel
Hér er unnið með kvenleikann og skyrta upp í háls …
Hér er unnið með kvenleikann og skyrta upp í háls notuð undir aðsniðinn jakka. Ljósmynd/Chanel
Ljósmynd/Chanel
Hér er skykkja með slaufu að framan.
Hér er skykkja með slaufu að framan. Ljósmynd/Chanel
Púffermar setja svip á þennan klassíska jakka.
Púffermar setja svip á þennan klassíska jakka. Ljósmynd/Chanel
Hér er unnið með látlausan lúxus.
Hér er unnið með látlausan lúxus. Ljósmynd/Chanel
Hér er jakkinn tekinn saman með slaufubelti.
Hér er jakkinn tekinn saman með slaufubelti. Ljósmynd/Chanel
Græni liturinn sást örlítið í línunni.
Græni liturinn sást örlítið í línunni. Ljósmynd/Chanel
Púffermar og veglegt brjóststykki einkenna þessa flík.
Púffermar og veglegt brjóststykki einkenna þessa flík. Ljósmynd/Chanel
Græn ullardragt með munstruðum faldi.
Græn ullardragt með munstruðum faldi. Ljósmynd/Chanel
Tískuhúsið er líka svolítið að vinna með standkragann.
Tískuhúsið er líka svolítið að vinna með standkragann. Ljósmynd/Chanel
Hér er búið að setja púffkant á skyrtu og beltið …
Hér er búið að setja púffkant á skyrtu og beltið minnir á franska tískuhúsið. Ljósmynd/Chanel
Brjóststykkið gefur kjólnum svip.
Brjóststykkið gefur kjólnum svip. Ljósmynd/Chanel
Hálsmál sem nær út á axlir er alltaf óskaplega hátíðlegt.
Hálsmál sem nær út á axlir er alltaf óskaplega hátíðlegt. Ljósmynd/Chanel
Standkragi og vel mótaðar ermar einkenna þennan alklæðnað.
Standkragi og vel mótaðar ermar einkenna þennan alklæðnað. Ljósmynd/Chanel
Ljósbleikur verður augljóslega einn af litum haustsins.
Ljósbleikur verður augljóslega einn af litum haustsins. Ljósmynd/Chanel
Rúnnað hálsmál og vel sniðinn efri partur fer vel við …
Rúnnað hálsmál og vel sniðinn efri partur fer vel við rykkt pilsið. Ljósmynd/Chanel
Hlýralaus kjóll með vel púffuðum neðri parti setti svip sinn …
Hlýralaus kjóll með vel púffuðum neðri parti setti svip sinn á sýninguna. Ljósmynd/Chanel
Þessi ljósa skykkja er frískleg.
Þessi ljósa skykkja er frískleg. Ljósmynd/Chanel
Það er alltaf fallegt að nota gegnsætt efni yfir bringu …
Það er alltaf fallegt að nota gegnsætt efni yfir bringu og axlir. Ljósmynd/Chanel
Hér er skykkjan komin í ljósan lit og með ásaumuðu …
Hér er skykkjan komin í ljósan lit og með ásaumuðu púffi og vestið minnir á búninga fyrri tíma. Ljósmynd/Chanel
Hvernig væri að setja smá tjull yfir mittislínuna?
Hvernig væri að setja smá tjull yfir mittislínuna? Ljósmynd/Chanel
Hér er slaufan í burðarhlutverki og rammar inn mittislínuna.
Hér er slaufan í burðarhlutverki og rammar inn mittislínuna. Ljósmynd/Chanel
Konur í plaskápum eru alltaf spennandi.
Konur í plaskápum eru alltaf spennandi. Ljósmynd/Chanel
Bleikrauð kápa er án efa fyrir konur sem vilja láta …
Bleikrauð kápa er án efa fyrir konur sem vilja láta taka eftir sér. Ljósmynd/Chanel
Hér er búið að setja púff á neðri hluta jakkans.
Hér er búið að setja púff á neðri hluta jakkans. Ljósmynd/Chanel
Hér er silkipúfflíning á jakka sem brýtur upp formið.
Hér er silkipúfflíning á jakka sem brýtur upp formið. Ljósmynd/Chanel
Hér er púffið sett neðst á jakkann til þess að …
Hér er púffið sett neðst á jakkann til þess að auka fegurð og stemningu. Ljósmynd/Chanel
Eitt af einkennum Chanel í gegnum tíðina hafa verið brjóstvasar …
Eitt af einkennum Chanel í gegnum tíðina hafa verið brjóstvasar með tölum. Hér er aðeins leikið sér með söguna og hún færð til nútímans. Ljósmynd/Chanel
Að nota annað efni á brjóstvasa er mjög móðins.
Að nota annað efni á brjóstvasa er mjög móðins. Ljósmynd/Chanel
Hér er búið að festa slaufur á efnið sem gerir …
Hér er búið að festa slaufur á efnið sem gerir flíkina meira lifandi. Ljósmynd/Chanel
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál