Olivia Culpo, fyrirsæta og fyrrverandi ungfrú alheimur, giftist Christian McCaffrey í fallegri athöfn á Rhode Island á dögunum. Í viðtali við Vogue gefur hún innsýn í brúðkaupsundirbúninginn.
„Hjónabandið er upphafið á einhverju sem á að vara alla ævi. Þetta er sameining tveggja einstaklinga sem tengjast órjúfanlegum böndum,“ segir Culpo sem hafði þessar áherslur í huga þegar kom að því að hanna brúðarkjólinn sem þykir afar hefðbundinn.
„Ég vildi eitthvað sem undirstrikaði alvarleika heitanna.“
Culpo valdi hátískuhúsið Dolce&Gabbana til þess að hanna kjólinn og tók ferlið marga mánuði. Kjóllinn er með miklu pilsi, síðum ermum og nær upp í háls.
„Kjóllinn mátti ekki vera kynþokkafullur á einn einasta hátt. Kjóllinn átti að fara mér vel en ekki yfirgnæfa mig. Hann átti að vera fallegur í einfaldleika sínum.“ Þegar Culpo reyndi að finna innblástur á netinu eftir slíkum kjól, þá fann hún hann ekki.
„Þá varð ég enn spenntari fyrir hugmyndinni að kjólnum.“
Þá segist Culpo hafa lagt áherslu á látlausa förðun og sleppti til dæmis að nota maskara.
„Mér varð hugsað til Christians og hvað hann elskar. Honum finnst ég fallegust þegar ég er klassísk, hulin og fáguð.“