Kjóllinn sem Kidman hefði viljað eiga

Nicole Kidman geymir ekki búninga sína.
Nicole Kidman geymir ekki búninga sína. AFP/Jean-Baptiste Lacroix

Kvikmyndastjarnan Nicole Kidman tekur ekki hluti eða búninga heim eftir að upptökum lýkur. Það eru þó ákveðnir hlutir sem hún væri til í að eiga. 

Í viðtali við mótleikkonu sína, Joey King, fyrir Vogue upplýsir Kidman hvaða búning hún væri til í að eiga. „Ég hefði viljað eiga bleiku fjaðrirnar úr Moulin Rouge af því þær eru svo fallegar,“ sagði Kidman þegar King spurði hana hvaða búning hún hefði helst viljað eiga. Hún nefndi einnig gleraugun úr Eyes Wide Shut. 

Hér má sjá Nicole Kidman í bleika dressinu í Moulin …
Hér má sjá Nicole Kidman í bleika dressinu í Moulin Rouge. Ljósmynd/Imdb

Því miður á Kidman ekki neina búninga frá kvikmyndaferlinum en sagan er allt önnur þegar kemur að rauða dreglinum. „Ég held ekki upp á neitt, hræðilegt,“ sagði Kidman um búninga. „En ég held upp á alla hátískukjólana mína.“

Nicole Kidman á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2022. Kidman geymir hátískukjólana sína.
Nicole Kidman á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2022. Kidman geymir hátískukjólana sína. AFP/ David Livingston

Hér fyrir neðan má sjá spjall Nicole Kidman og Joey King fyrir Vogue. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál