Kjóll Meghan nánast eins og brúðarkjóll hennar

Kjóll Meghan á ESPY-verðlaunahátíðinni minnti á gamlan kjól í safni …
Kjóll Meghan á ESPY-verðlaunahátíðinni minnti á gamlan kjól í safni hennar. Samsett mynd

Meghan hertogaynja veit hvað fer henni vel og hún tók enga áhættu þegar hún mætti í hvítum kjól á ESPY-íþróttaverðlaunin í Hollywood á fimmtudaginn. Meghan minnti á nútímalega brúður í kjólnum. 

Kjóllinn sem Meghan klæddist var tekinn saman um hálsinn þannig að axlirnar voru berar. Minnti sniðið á kjólinn sem hún klæddist í kvöldveislunni í brúðkaupi sínu. Sá kjóll var hannaður af breska hönnuðinum Stellu McCartney. Ekki var um sama kjól að ræða en kjóllinn minnti aðdáendur Meghan óneitanlega á brúðkaupið þeirra árið 2018. 

Hertogahjónin af Sussex, Harry og Meghan, voru viðstödd verðlaunin þar sem Harry var verðlaunaður fyrir Invictus-leikana. Harry Bretaprins stofnaði In­vict­us-leik­ana árið 2014 fyr­ir fyrr­ver­andi her­menn sem hafa særst í átök­um. 

Meghan í hvítu og Harry í jakkfötum.
Meghan í hvítu og Harry í jakkfötum. AFP/FRAZER HARRISON
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál