Gleymdi hún pilsinu?

Emma Corrin birti þessa mynd af sér af rauða dreglinum …
Emma Corrin birti þessa mynd af sér af rauða dreglinum í Berlín. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Emma Corrin vakti mikla athygli á rauða dreglinum í Berlín á dögunum þegar kvikmyndin Deadpool & Wolverine var frumsýnd. 

Corrin sem margir þekkja fyrir túlkun sína á Díönu prinsessu í The Crown á Netflix mætti á frumsýningu nýjustu myndar sinnar í svörtu dressi frá franska tískuhúsinu Saint Laurent. Við fyrstu sýn leit út fyrir að Corrin hefði gleymt pilsinu og farið út á undirfötunum. Þegar betur er að gáð sést að Corrin er í langerma míníkjól. Kjóllinn er með áföstum sokkaböndum og var hún í uppháum sokkum sem voru fastir við sokkaböndin. 

Stílisti Emmu Corrin, Harry Lambert, hugsaði út í öll smáatriði.
Stílisti Emmu Corrin, Harry Lambert, hugsaði út í öll smáatriði. Skjáskot/Instagram

Fram kemur á vef breska Vogue að kjóllinn sé hluti af vetrartísku Saint Laurent fyrir árið 2024. Þegar fyrirsæta gekk tískupallinn í kjólnum var hún með sokkaböndin föst við uppháu sokkana og í sokkabuxum undir. Stílisti Corrin, Harry Lambert, kaus hins vegar að fara djarfari leið og lét Corrin sleppa sokkabuxunum sem fyrirsætan var í undir uppháu sokkunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál