Ljóstrar upp fegurðarleyndarmálinu

Sophie Turner.
Sophie Turner. AFP/ISABEL INFANTES

Game of Thrones-leikkonan Sophie Turner ljóstraði upp fegurðarleyndarmáli sínu í viðtali við InStyle á dögunum. Leikkonan segist til dæmis alltaf nota varablýant þegar hún gerir sig til. 

„Alltaf varablýantur, líklega Charlotte Tilbury Pillow Talk-varablýantinn. Ég elska Face Atalier farðann. Og líklega kinnalitur,“ segir Turner þegar hún er spurð hvaða vörur hún notar þegar hún gerir sig til. Hún ljóstrar líka upp að uppáhaldsvaraliturinn sé Nude Venus frá Pat McGrath. 

Varaliturinn Nude Venus frá Pat McGrath. Varablýantur frá Charlotte Tilbury. …
Varaliturinn Nude Venus frá Pat McGrath. Varablýantur frá Charlotte Tilbury. Farði frá Face atalier.

Turner er alltaf með nokkra hluti á sér í töskunni sem koma útlitinu vel. Hún segir hárteygju koma sér vel. Svo er hún með varablýant og varalitinn sinn. Allt þetta á það sameiginlegt að fara af yfir kvöldið. 

Eftir langt kvöld er húðrútínan einföld. Turner hreinsar andlitið með Miceller hreinsivatni og setur svo á sig kremið Skin Food frá Weleda. 

Kremið Skin Food frá Weleda.
Kremið Skin Food frá Weleda.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál