Jóhanna Guðrún vekur athygli í bleikum sjóstakki

Jóhanna Guðrún er í bleikum sjóstakki í nýju myndbandi.
Jóhanna Guðrún er í bleikum sjóstakki í nýju myndbandi. Skjáskot/Instagram

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hefur vakið mikla athygli í bleikum sjóstakki í myndbandi hennar fyrir Þjóðhátíðarlagið 2024, sem ber heitið Töfrar.

Við fyrstu sýn líkist þetta pollagalla en þetta er þó enginn venjulegur pollagalli heldur sjóstakkur sem hefur fylgt Íslendingum í áraraðir og farið frá því að vera einungis notaður sem hlífðarfatnaður á sjó yfir í að prýða landsmenn á útihátíðum.

Sjóstakkarnir hafa fylgt Íslendingum í áraraðir.
Sjóstakkarnir hafa fylgt Íslendingum í áraraðir.

Fleiri frægir hafa látið sjá sig í þessum fatnaði að undanförnu en vinkonurnar Sunneva Einarsdóttir og Birta Líf Ólafsdóttir, áhrifavaldar og hlaðvarpsstjörnur, klæddust einnig bleiku sjóstökkunum á ferð sinni um landið nú á dögunum.

@tebodid Skæri, blað, BESTÍS 💓🍧🌸🦋 #tebodidbestis ♬ original sound - Teboðið

Bleiku stakkarnir ruku út

Stakkarnir eru frá 66°Norður og eru að sögn forsvarsmanna verslunarinnar uppseldir en von er á nýrri sendingu á næstu dögum. 

„Í tilefni af góðum viðtökum ætlar 66°Norður að slá til heljarinnar sumarveislu í verslun sinni á Laugavegi 17 þann 24. júlí þar sem hver og einn getur fundið sér fatnað sem hentar vel fyrir íslenskt sumar. Þar mun Daniil stíga á svið ásamt því að DJ Guðný Björk mun þeyta skífum,“ segir í tilkynningu frá 66°Norður.

Sjóstakkarnir fást í bleiku og brúnu.
Sjóstakkarnir fást í bleiku og brúnu. Mynd/Sigríður Margrét
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál