Prinsessan vakti athygli í eldrauðum samfestingi

Charlene prinsessa af Mónakó vakti töluverða athygli í eldrauðum samfestingi.
Charlene prinsessa af Mónakó vakti töluverða athygli í eldrauðum samfestingi. AFP

Charlene prinsessa af Mónakó vakti töluverða athygli á dögunum fyrir djarfan klæðaburð. Við opnun sýningarinnar La flamme Olympique au fil des temps mætti hún í eldrauðum samfestingi frá Elie Saab.

Samfestingurinn var ermalaus með v-hálsmáli og tekinn saman í mittið með skrautlegri nælu. Þá voru buxnaskálmarnar útvíðar sem gerði samfestinginn skemmtilega öðruvísi.

Prinsessan valdi að vera í gullsandölum við samfestinginn, eldrauðan varalit og látlausa eyrnalokka. 

Charlene er þekkt fyrir að fara eigin leiðir þegar kemur að því að móta sinn persónulega fatastíl og minnisstætt er þegar hún rakaði hárið af hálfu höfðinu.

Charlene hikar ekki við að vera í djörfum samfestingum ef svo ber undir, ólíkt öðrum kvenkyns meðlimum konungsfjölskyldna í Evrópu. Katrín prinsessa af Wales hefur til dæmis aldrei sést í samfestingi svo vitað sé til og ekki heldur Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar. Það er aðeins Letizia Spánardrottning sem gæti talist álíka djörf í klæðavali og Charlene prinsessa. 

Charlene prinsessa var í eldrauðum samfestingi með útvíðum skálmum.
Charlene prinsessa var í eldrauðum samfestingi með útvíðum skálmum. AFP
Prinsessan valdi að hafa rauðan varalit í stíl við samfestinginn.
Prinsessan valdi að hafa rauðan varalit í stíl við samfestinginn. AFP
Prinsessan bar sig vel. Það hefur mikið gengið á hjá …
Prinsessan bar sig vel. Það hefur mikið gengið á hjá henni, erfið veikindi og stanslausar slúðursögur. AFP
Árið 2023 klæddist Charlene ljósfjólubláum samfestingi og bar silfurlitað veski.
Árið 2023 klæddist Charlene ljósfjólubláum samfestingi og bar silfurlitað veski. Skjáskot/Instagram
Árið 2022 var Charlene prinsessa í ljósbláum samfestingi sem þykir …
Árið 2022 var Charlene prinsessa í ljósbláum samfestingi sem þykir klassískur í sniðinu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál