Sjáðu fötin sem Erna Sóley mun klæðast á Ólympíuleikunum

Erna Sóley Gunnarsdóttir er ein af fimm fulltrúum Íslands á …
Erna Sóley Gunnarsdóttir er ein af fimm fulltrúum Íslands á Ólympíuleikunum 2024. Samsett mynd

Ólympíuleikarnir munu hefjast í París næstkomandi föstudag, en í ár á Ísland fimm fulltrúa á leikunum. Þar á meðal er kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir, en hún verður fyrsta íslenska konan til að keppa í kúluvarpi á Ólympíuleikunum. 

Erna Sóley  tók þátt í skemmtilegu „trendi“ á samfélagsmiðlum þar sem keppendur hafa tekið upp myndbönd og sýnt Ólympíufatnaðinn sem þau munu klæðast á leikunum. 

Það er mismunandi á milli landa hverskonar fatnaði er úthlutað til keppenda og frá hvaða merki, en einnig er það mismunandi á milli íþrótta. Erna Sóley deildi myndbandi á Instagram þar sem hún sýndi fatnaðinn sem hún fékk frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. 

Í ár er fatnaðurinn frá merkinu Peak, en það fyrsta sem Erna Sóley sýndi í myndbandinu var stærðarinnar ferðataska merkt Íslandi. Þá fékk hún einnig bakpoka, íþróttatösku, nokkur skópör, boli, buxur, utanyfirgalla, ferðafatnað, sokka, derhúfur og jakka svo eitthvað sé nefnt. 

Vörurnar eru allar merktar Íslandi og er litapallettan í stíl við fána þjóðarinnar, en vörurnar eru ýmist hvítar, bláar eða rauðar. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál