Skildi lítið eftir fyrir ímyndunaraflið

Kanye West er sagður stjórna fatavali eiginkonu sinnar.
Kanye West er sagður stjórna fatavali eiginkonu sinnar.

Bianca Censori, eiginkona rapparans Kanye West, skildi lítið eftir fyrir ímyndunaraflið þegar hún hélt í verslunarleiðangur í Beverly Hills á fimmtudag

Censori, sem er 29 ára og menntaður arkitekt, hef­ur valdið mikl­um usla með djörf­u og ögr­andi fatavali sínu síðustu vik­ur og mánuði enda ófeim­in við að spóka sig um hálfnak­in. 

Hún breytti ekki út af vananum á fimmtudag og klæddist örþunnum míníkjól og g-streng til að kíkja í búðir. Kjóllinn minnti einna helst á nælon sokk.

Klæðaburður Censori hefur vakið mikla athygli, sjaldan jákvæða, á síðustu mánuðum.

Í fyrra, þegar hjónin heimsóttu Feneyjar, bárust lögreglunni ítrekaðar tilkynningar og kvartanir frá almenningi vegna ögrandi fatavals Censori. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál