10 ómissandi hlutir eftir sumarfríið

Samsett mynd

Óskalistinn þessa vikuna er fyrir þá sem eru að skríða til baka úr sumarfríinu og eru að berjast við að koma sér aftur í rútínuna. Þá vilja margir lífga upp á fataskápinn, heimilið og reyna að drífa sig á æfingu.

Smartland tók saman nokkra hluti sem eru ómissandi fyrir rútínuna framundan.

Fögnum haustinu með skókaupum

Tískuáhugafólk elskar yfirleitt haustið með öllum þeim nýjungum sem því fylgir eins og grófum stígvélum og ullaryfirhöfnum. Þessi stígvél passa við margt og er vel hægt að finna þeim notagildi allan ársins hring. 

Stígvél frá Pavement. Þau fást í GS Skóm og kosta …
Stígvél frá Pavement. Þau fást í GS Skóm og kosta 48.995 kr.

Gefðu þér tíma heima

Þegar tími gefst er frábært að drekka fyrsta kaffibolla dagsins heima við í stað þess að rjúka út í umferðina með götumálið í bílnum. Nýjasta æðið í húsbúnaði eru stállitaðir hlutir og þessi fallegi bolli frá merkinu The Arlo fær kaffið líklega til að bragðast miklu betur.

Bolli frá The Arlo, fæst í Vest og kostar 7.690 …
Bolli frá The Arlo, fæst í Vest og kostar 7.690 kr.

Ekki detta í svart 

Ætla ekki flestir að koma sér aftur á æfingu eftir sumarsukkið? Ný æfingaföt geta komið fólki af stað fyrstu dagana eftir frí. Ef þú þarft að endurnýja reyndu að sækja ekki í enn einu svörtu buxurnar heldur prófaðu fleiri liti eins og þessar sægrænu buxur frá Nike. 

Æfingabuxur frá Nike. Þær kosta 13.995 kr. og fást í …
Æfingabuxur frá Nike. Þær kosta 13.995 kr. og fást í H Verslun.

Heimili í einstökum byggingum

Margir safna svokölluðum „sófaborðabókum“ en það eru bækur sem innihalda oft innblástur, fallegar ljósmyndir og góð ráð. Bókin Shifting Spaces sýnir frá fjórtán heimilum í einstökum byggingum. Tilvalin fyrir þá sem elska arkitektúr og falleg heimili.

Bókin Shifting Spaces fæst í versluninni Mikado og kostar 8.290 …
Bókin Shifting Spaces fæst í versluninni Mikado og kostar 8.290 kr.

Hlýlegur borðlampi

Borðlampar geta gefið hlýja og fallega birtu í skammdeginu og geta verið sérstaklega skemmtilegir í eldhúsum. Það þarf oft ekki mikið til að lífga aðeins upp á heimilið en þessi lampi er einstaklega fallegur á litinn.

Lampinn fæst í Tekk og kostar 17.500 kr.
Lampinn fæst í Tekk og kostar 17.500 kr.

Falleg taska sem allt kemst í

Nú þegar fartölvan þarf að komast með í vinnuna, á kaffihúsið eða í skólann verður hún að sjálfsögðu vera nógu stór. Ofið leður hefur verið vinsælt síðustu mánuði og þessi taska er bæði flott og rúmar flest það sem þarf að vera meðferðis þegar mikið er að gera.

Taska frá Hugo og kostar 34.990 í Mathilda.
Taska frá Hugo og kostar 34.990 í Mathilda.

Ilmkerti af bestu gerð

Haustið er tími ilmkertanna og nóg er úrvalið í verslunum landsins. Við mælum með að prófa eitthvað nýtt að þessu sinni og jafnvel þyngri lyktir en vanalega ef þú hefur smekk fyrir því.

Ilmkerti frá Maison Louis Marie. Fæst í Andrá og kostar …
Ilmkerti frá Maison Louis Marie. Fæst í Andrá og kostar 6.900 kr.

Dragt og strigaskór

Það er þægilegt að eiga dragt fyrir vinnuna þegar fólk vill hugsa sem minnst um í hverju skal klæðast. Þessi dökkbláa dragt frá Zöru yrði fullkomin við hvíta strigaskó.

Dragt frá Zöru. Jakkinn kostar 12.995 og buxurnar 7.995 kr.
Dragt frá Zöru. Jakkinn kostar 12.995 og buxurnar 7.995 kr.

Komið nóg af grillinu?

Langflestir eru líklega komnir með leið af grilluðu kjöti og köldum sósum. Þá er tilvalið að kíkja á þessa pönnu með loki frá Le Creuset sem er fullkomin til að elda sósumikla kjúklinga- eða fiskrétti. Hvíti liturinn með gylltum tappa er nýr hjá merkinu og sómar sér eflaust vel inn í stílhreinu eldhús landsins.

Nýr litur frá Le Creuset. Pannan kostar 51.995 og fæst …
Nýr litur frá Le Creuset. Pannan kostar 51.995 og fæst í Byggt og búið.

Haltu húðinni líflegri

Þó að húðin sé eflaust enn lífleg eftir þessa nokkru sólargeisla sumarsins þá er mikilvægt að hugsa vel um hana þegar veðrið fer kólnandi. Þessi næturmaski frá Rowse sér um að róa húðina og lífgar hana við á meðan þú sefur eins og ungabarn.

Næturmasi frá Rowse fæst í Officina og kostar 9.490 kr.
Næturmasi frá Rowse fæst í Officina og kostar 9.490 kr.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál