Smekklegustu karlmenn landsins

Guðmundur, Jökull, Logi og Rúrik eru smekklegir.
Guðmundur, Jökull, Logi og Rúrik eru smekklegir. Samsett mynd

Íslenskir karlmenn eru sko alls engar gungur og þora að stíga út fyrir þægindarammann og prófa sig áfram með ný snið, efni og liti. Íslenskir karlmenn eru blóðheitir, föngulegir og dularfullir og vekja gjarnan athygli fyrir smekklegan klæðaburð og ómældan kynþokka. 

Smartland tók saman lista yfir nokkra af smekklegustu karlmönnum landsins! 

Rúrik Gíslason 

Rúrik Gíslason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, leikari og IceGuys-stjarna, vekur eftirtekt hvar sem hann kemur enda ávallt með puttann á púlsinum varðandi það nýjasta í tískuheiminum.

Jökull Júlíusson

Jökull Júlíusson forsprakki Kaleo er algjör töffari. Hann hefur ávallt verið hrifinn af kúrekastílnum sem er gríðarlega vinsæll um þessar mundir. Hann klæðir sig gjarnan á afslappaðan máta. 

View this post on Instagram

A post shared by JJ Julius Son (@julius_son)

Einar Guðmundsson

Einar er grafískur hönnuður og er annar eiganda á bakvið verslunarinnar Mikado. Stíllinn hans er stílhreinn en töff og sækir hann mikið í þykkar skyrtur til að nota yfir stuttermaboli.

Benjamin Hardman

Ljósmyndarinn Benjamin Hardman er mikill útivistarkarl og klæðir sig því eftir veðri. Hann klæðist reglulega mildum jarðtónum og er alltaf með „beanie hat“ á höfðinu. 

Logi Pedro

Logi Pedro, tónlistarmaður og pródúsent, klæðir sig þægilega. Hann er klár að setja sam­an skemmti­leg­ar fata­sam­setn­ing­ar og er alltaf smart.

View this post on Instagram

A post shared by Logi Pedro (@logipedro)

Guðmundur Ragnarsson

Guðmundur er fatahönnuður og veit þess vegna ýmislegt um tísku. Hann elskar strigaskó og er óhræddur við að klæða sig í skæra liti.

Stefán John Turner

Stefán er áhrifavaldur og einn af þeim fyrstu sem hófu að deila daglegum myndum af fatnaði sínum fyrir almenningi þegar bloggsíðurnar voru sem vinsælastar. Hann er mest í jarðarlitum, stílhreinum fatnaði og notar mikið af skartgripum.

Helgi Jónsson

Helgi er búsettur í Kaupmannahöfn og er með afslappaðan og flottan stíl. Hann elskar víðar buxur og stórar yfirhafnir.

Mugison

Tónlistarmaðurinn Mugison er með einkennandi fatastíl sem klikkar seint. Hattar, axlabönd og ullarpeysur eru í uppáhaldi hjá tónlistarmanninum.

View this post on Instagram

A post shared by Mugison (@mugisonn)

Krister Blær Jónsson

Krister er nemi í læknisfræði og elskar útivist. Stíllinn hans er fjölbreyttur en hann er alltaf smekklegur, hvort sem það er við fínu tilefnin eða í skíðabrekkunni.

Hallgrímur Mar Bergmann

Hallgrímur er knattspyrnumaður og er búsettur á Akureyri. Hann hræðist ekki litina en klæðist oftast stílhreinum fatnaði og stórum yfirhöfnum.

Guðmundur Birkir Pálmason

Guðmundur Birkir Pálmason, jafnan kallaður Gummi kíró, er alltaf smart til fara. Hann er mik­ill fag­ur­keri og með gott auga fyr­ir fal­leg­um flík­um.

Birnir Snær Ingason

Birn­ir hef­ur vakið mikla at­hygli að und­an­förnu, bæði fyr­ir áhuga­verðan fata­stíl sinn og frum­lega hönn­un. Hann er knattspyrnumaður og nemandi í fatahönnun.

Aron Freyr Heimisson

Aron Freyr er annar eiganda Mikado og er grafískur hönnuður. Hann hefur gott auga fyrir góðri, tímalausri hönnun og er með gott auga fyrir smáatriðum. 

Ólafur Alexander Ólafsson

Ólafur er frumkvöðull og hefur verið þekktur fyrir flottan fatastíl í mörg ár. Hann er mikið fyrir sportlegt útlit og er óhræddur við að ganga lengra en margir aðrir.

Hlynur Hákonarson

Hlynur hefur látið til sín taka í tískuheiminum undanfarin ár og starfar nú hjá 66°Norður. Hann er óhræddur við að klæðast öðruvísi fatnaði og hannar mikið sjálfur.

View this post on Instagram

A post shared by Hlynur (@hlynurhakonar)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál