Þau sem áttu erindi í Héraðsdóm Reykjavíkur í gær pössuðu vel upp á að mæta flott til fara. Í gær fór fram þingfesting í stóru fíkniefnamáli þar sem átján manns eru ákærðir.
Á myndum má sjá yfirhafnir frá Patagonia og Prada meðal annars og ljóst að þar hefur enginn verið að spara. Svört sólgleraugu eru einnig áberandi frá stóru tískuhúsunum Celine og Gucci.
Hugo Boss peysa og Prada jakki yfir.
mbl.is
Þennan Prada jakka má finna á vefversluninni Farfetch og kostar þar rúmlega 395 þúsund krónur.
Svört Celine sólgleraugu.
mbl.is
Celine sólgleraugu sem kosta tæplega 55 þúsund krónur á bresku vefversluninni Net-a-Porter.
Patagonia útivistarjakki.
mbl.is
Þarna má sjá glitta í Gucci-sólgleraugu.
mbl.is
Gucci Wayfarer sólgleraugu kosta um 24.500 krónur á vefsíðunni Farfetch.