Adam Sandler stal stílnum af Sigmundi Davíð

Adam Sandler stal stílnum af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni Miðflokksinns …
Adam Sandler stal stílnum af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni Miðflokksinns þegar hann gekk um stræti Brooklyn í sitthvorum skónum. Samsett mynd

Leikarinn og grínistinn, Adam Sandler, er löngu orðin tískugoðsögn en hann hefur afslappaðan stíl sem sló í gegn fyrir algera slysni. 

TikTok-stjarnan AjayPorter, betur þekktur sem Mystery Fashionist, talaði nýlega við Sandler þar sem hann var staddur í Brooklyn í New York. Viðtalið hefur vakið mikla athygli þar sem Sandler opinberar tískuleyndarmál sín. 

Þann dag var Sandler klæddur í bláan póló bol við víðar bláar Under Armour stuttbuxur. Yfir þetta allt saman klæddist hann dökkblárri Fila íþróttapeysu. Hann var í Puma íþróttaskóm, þó ekki í stíl, heldur af sitthvorri sortinni. Það var nettur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í þessu útliti en hann vakti athygli á sínum tíma þegar hann mætti í sitthvorum skónum í kvöldverðarboð með þáverandi forseta Bandaríkjanna, Barack Obama, sem haldið var í Stokkhólmi. 

Adam Sandler er þekktur fyrir afslappaðan fatastíl sínn.
Adam Sandler er þekktur fyrir afslappaðan fatastíl sínn. Samsett mynd

Grípur fötin sem hann sér

Í viðtalinu játaði Sandler að hann hefði ekki mikinn áhuga á klæðaburði og spáði lítið í hvað hann klæddi sig hverju sinni.

„Ég tek bara hvað sem er úr skápnum mínum. Ég held að ég eigi mikið af sömu sokkunum og það sama á við um nærbuxurnar. Ég bara tek það sem ég sé og hugsa ekkert mikið um það. Flestir í fjölskyldunni minni gera grín af mér en ég held bara áfram út í daginn.“

Þægilegir stigaskór ómissandi

Aðspurður hvaða tískuvörur eru ómissandi að hans mati sagðist hann ekki getað lifað án góðra sokka, fyndna bola og strigaskóa.

Sandler bætir því við að hann sé alls ekki kröfuharður varðandi skóna, heldur þurfa þeir aðeins að passa. 

„Það skiptir ekki máli hvort þér séu skítugir eða ekki, svo lengi sem þeir passa og meiða mig ekki,“ segir hann. 

Sandler endaði svo viðtalið á að grínast með „algengan misskilning“ um sjálfan sig.

„Fólk fattar áttar sig ekki alltaf á að ég er 198 cm,“ segir Sandler en samkvæmt IMDb er Rauveruleg hæð leikarans 177 cm. 

People

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál