Áslaug Arna blæs hárið með 110 þúsund króna blásara

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir notar einn eftirsóttasta hárblásara heims, Dyson Airwrap, …
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir notar einn eftirsóttasta hárblásara heims, Dyson Airwrap, til að blása á sér hárið. Samsett mynd

Glæsilegur hárblástur Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur verið áberandi í umræðunni undanfarna daga eftir umdeild ummæli Ásgeirs Bolla Ásgeirssonar, sem jafnan er kenndur við verslunina 17, um ungar konur.

Ásgeir vill bjóða fram viðbótarlista fyrir Sjálfstæðisflokkinn undir merkjum DD-lista. Í viðtali á Vísi sagði Ásgeir: „Við erum ekk­ert að leita að ein­hverj­um, hvað á ég að kalla það. Ein­hverj­um ný­út­skrifuðum stúlk­um sem ætla bara að blása á sér hárið og naglalakka sig. Þó ég hafi fulla virðingu fyr­ir ungu fólki þá þurf­um við fólk með reynslu og eitt­hvað fólk sem hef­ur áunnið sér eitt­hvað í líf­inu.“

Áslaug Arna svaraði ummælunum í færslu á Facebook þar sem hún skrifaði: „Hjá sum­um er Boll­inn alltaf hálf tóm­ur, en hjá „ný­út­skrifuðum” stelp­um með blásið hár og naglalakk er Boll­inn full­ur.“

Einn eftirsóttasti hárblásari heims

Í kjölfarið birti hún myndband af sér þar sem hún var að blása á sér hárið, en til þess notaði hún hinn fræga Dyson-hárblásara sem hefur slegið rækilega í gegn um allan heim. Hann þykir mikil bylting í hármótunarbransanum þar sem hann bæði þurrkar og stíliserar hárið á sama tíma. 

Með hárblásaranum fylgja svo ýmsir aukahlutir, en hann er einnig með mismunandi hraðastillingar og hitastillingar, þar á meðal kalt loft sem á að fara mun betur með hárið. Hér á Íslandi fæst hárblásarinn í verslunum Elko, en hann kostar 109.995 krónur.

Áslaug Arna birti myndband af sér með Dyson-hárblásarann á Instagram.
Áslaug Arna birti myndband af sér með Dyson-hárblásarann á Instagram. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál