Er þetta eftirsóttasti jakkinn í dag?

Rúskinnsjakkar eru mjög vinsælir.
Rúskinnsjakkar eru mjög vinsælir. Ljósmynd/Samsett mynd

Þegar við hugsum um að fara að klæða okkur upp fyrir haustið eru nokkrar flíkur sem koma alltaf upp í hugann. Til dæmis yfirhafnir úr leðri, gallabuxur, gróf stígvél og ullarpeysur. En þetta árið er erfitt að tala um hausttískuna án þess að nefna rúskinnsjakkann sem virðist vera út um allt. Það má varla opna samfélagsmiðla án þess að sjá einhvern áhrifavaldinn í jakkanum í brúnu og þegar þeir loks koma í verslanir seljast þeir hratt upp. En hvar fást þessir jakkar og við hvað passa þeir?

Rúskinnið hefur verið jafn áberandi hjá vinsælustu tískuhúsum heims sem og í götutískunni. Helst er hann áberandi í ljós- eða kaffibrúnum lit og er auðvelt að stílisera hann við hin fötin í fataskápnum. Möguleikarnir eru endalausir. Litirnir sem fara vel við hann eru ljósir og hvítir tónar, grár, svartur og hvítur. Aðrir brúntóna litir gætu dregið jakkann niður og gert hann kúrekalegri en það fer samt vel með jakkanum að hafa aukahlutina í brúnum litum eins og töskur og skó.

Fylgihlutir í brúnu passa vel við brúnt rúskinn.
Fylgihlutir í brúnu passa vel við brúnt rúskinn. Ljósmynd/Instagram
Danski áhrifavaldurinn Pernille Teisbæk er hrifin af jakkanum í stórri …
Danski áhrifavaldurinn Pernille Teisbæk er hrifin af jakkanum í stórri stærð. Ljósmynd/Instagram
​Þegar haustið tekur við af sumri er flott að klæðast …
​Þegar haustið tekur við af sumri er flott að klæðast jakkanum við allt hvítt. Ljósmynd/Instagram
Dökkbrúnn passar vel við víðar og bláar gallabuxur.​
Dökkbrúnn passar vel við víðar og bláar gallabuxur.​ Ljósmynd/Instagram
Brúnt, svart og hvítt er klassísk litasamsetning.
Brúnt, svart og hvítt er klassísk litasamsetning. Ljósmynd/Instagram

Kærkomin tilbreyting

Tískuhús eins og Gucci, Miu Miu, Coach, Ralph Lauren, Bottega Veneta og Isabel Marant sendu frá sér sínar útgáfur sem voru jafn fjölbreyttar og þær voru margar. Jakkinn frá Miu Miu var skreyttur pallíettum og gimsteinum, hann var dökkbrúnn og klassískur frá Ralph Lauren og skreyttur kögri frá Coach og Isabel Marant. Jakkann má finna í verslunum hér á landi eins og í Mathildi og Zöru. Ef leiðin liggur til útlanda á næstunni er meiri von á að finna hann í Massimo Dutti eða Mango. Ef heppnin er með þér þá er líka von á að finna svona jakka í verslunum sem selja notuð föt eins og Spúútnik, Gyllti kötturinn og Buymychic.

Þetta árið hefur jakkinn tekið við af svarta dragtarjakkanum og rykfrakkanum sem þessi klassíska haustflík. Það er ómögulegt að segja til um það núna hversu lengi hann staldrar við en þetta er kærkomin tilbreyting. Vonum bara að það rigni ekki því þá gerir rúskinnið lítið gagn.

Haustleg dragt úr dökkbrúnu rúskinni frá Ralph Lauren.
Haustleg dragt úr dökkbrúnu rúskinni frá Ralph Lauren. Ljósmynd/Ralph Lauren
Dökkbrúnn og skreyttur jakki úr haust- og vetrarlínu Miu Miu.
Dökkbrúnn og skreyttur jakki úr haust- og vetrarlínu Miu Miu. Ljósmynd/Miu Miu
Ljós og síður rúskinnsjakki úr haust- og vetrarlínu Miu Miu.
Ljós og síður rúskinnsjakki úr haust- og vetrarlínu Miu Miu. Ljósmynd/Miu Miu
Kúrekalegur með kögri frá ameríska tískuhúsinu Coach.
Kúrekalegur með kögri frá ameríska tískuhúsinu Coach. Ljósmynd/Coach
Tískudrottningin og ljósmyndarinn Íris Dögg Einarsdóttir klæddist rúskinnskápu á dögunum.
Tískudrottningin og ljósmyndarinn Íris Dögg Einarsdóttir klæddist rúskinnskápu á dögunum. Ljósmynd/Sunna Ben
​Jakki frá Mango, hann kostar 60.500 kr og fæst á …
​Jakki frá Mango, hann kostar 60.500 kr og fæst á mango.com.
​Ljósbrúnn jakki úr gervirúskinni. Fæst í ZÖRU og kostar 7.995 …
​Ljósbrúnn jakki úr gervirúskinni. Fæst í ZÖRU og kostar 7.995 kr.
Kápa frá Ralph Lauren, fæst í Mathildu og kostar 249.990 …
Kápa frá Ralph Lauren, fæst í Mathildu og kostar 249.990 kr.
Rúskinnsjakki frá Massimo Dutti. Hann kostar 41.000 krónur og fæst …
Rúskinnsjakki frá Massimo Dutti. Hann kostar 41.000 krónur og fæst á massimodutti.com.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál