Franska tískuhúsið Chanel frumsýndi vor- og sumarlínuna fyrir árið 2025 á tískuvikunni í París fyrr í dag. Sýningin fór fram í Grand Palais sem hefur verið einn aðalsýningarstaður Chanel um árabil. Laufey Lín Jónsdóttir og Júnía Lín Jónsdóttir voru í fremstu röðum á tískusýningunni. Þetta er einn stærsti viðburðurinn á tískuvikunni og er yfirleitt stjörnum prýddur.
Þema línunnar er eterískt frelsi og er fyrir þær konur sem hafa frelsað sig frá augum samfélagsins. „Þetta flug er tileinkað þeim,“ segir í tilkynningu frá Chanel.
Í línunni er mikið um fjaðrir sem eiga að tákna flugið, þunnar skikkjur úr chiffon-efni, gallabuxur með pallíettum og kögri og létta litríka og mynstraða kjóla. Dragtir úr fræga tweed-efninu þeirra eru á sínum stað sem og vesti í ljósbleikum lit.