Bestu augnkremin í kuldanum

Nú er tíminn til að nota gott augnkrem.
Nú er tíminn til að nota gott augnkrem. Unsplash/Yukon Houghton

Margir nota augnkrem á hverjum degi árið um kring en aðrir kjósa að grípa í það þegar ástandið er orðið slæmt. Augnkrem eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg; sum veita mikinn raka á meðan önnur fela dökka bauga og línur. Fyrir aukinn ferskleika er gott ráð að geyma augnkremið í ísskáp og bera á sig á morgnana.

BL + Eye Cream frá Blue Lagoon Skincare

Háþróað augnkrem sem sléttir, þéttar og verndar viðkvæmt augnsvæðið. Það örvar kollagenframleiðslu í húð, er nærandi og dregur úr ásýnd fínna lína og hurkkna.

BL+ Eye Cream frá Blue Lagoon Skincare, 15 ML kosta …
BL+ Eye Cream frá Blue Lagoon Skincare, 15 ML kosta 15.900 kr.

Awakening Creamy Eye Essence frá Sensai

Þetta er létt augnkrem sem lyftir húðinni í kringum augun og veitir henni endurnærandi raka. Kremið eykur einnig þéttleika og dregur úr hrukkum á augnsvæði. 

Awakening Creamy Eye Essence frá Sensai, 18.390 kr.
Awakening Creamy Eye Essence frá Sensai, 18.390 kr.

Creamy Eye Treatment frá Kiehl's

Vinsælasta augnkremið frá Kiehl's og gefur næringu, raka og ferskleika. Það hentar einnig viðkvæmri húð.

Creamy Eye Treatment frá Kiehl's, 14 ML kosta 5.999 kr.
Creamy Eye Treatment frá Kiehl's, 14 ML kosta 5.999 kr.

EGF Power Eye Cream frá BIOEFFECT

Sérstaklega þróað augnkrem til að minnka ásýnd fínna lína, hrukkna, bauga, þrota og þurrks á augnsvæðinu. 

EGF Power Eye Cream frá BIOEFFECT, 15.490 kr.
EGF Power Eye Cream frá BIOEFFECT, 15.490 kr.

Total Eye Lift frá Clarins

Kraftmikið augnkrem gegn öldrunarmerkjum. Vinnur gegn hrukkum, baugum og þrota fyrir sjáanlega augnlyftingu á skömmum tíma.

Total Eye Lift frá Clarins, 14.299 kr.
Total Eye Lift frá Clarins, 14.299 kr.

Cellular Luminous frá Nivea

Rakagefandi augnkrem sem inniheldur einkaleyfisverndaða efnið Luminous630 sem hjálpar til við að koma jafnvægi á litarefnaóreglu og minnka þannig sýnilega dökka bauga í kringum augun.

Cellular Luminous frá Nivea, kostar 3.599 kr.
Cellular Luminous frá Nivea, kostar 3.599 kr.

Anti-Pigment frá Eucerin

Augnkrem sem leiðréttir og dregur úr dökkum baugum, þrota og sléttir fínar línur.

Anti-Pigment augnkrem frá Eucerin, 15 ML kosta 4.999 kr.
Anti-Pigment augnkrem frá Eucerin, 15 ML kosta 4.999 kr.

Anti-Aging augnkrem frá ChitoCare

Kremið frískar upp á húðina með þrefaldri virkni sem eykur stinnleika og teygjanleika húðar og dregur úr sýnileika augnhrukkna, bauga og þrota. Augnkremið er auðugt að öflugum andoxunarefnum, rakagefandi sjávarkítósani og hýalúrónsýru.

Anti-Aging augnkrem frá ChitoCare, 15.990 kr.
Anti-Aging augnkrem frá ChitoCare, 15.990 kr.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda