Einföld fataráð fyrir önnum kafið fólk

Stórar og veglegar töskur geta gert mikið fyrir annars látlausan …
Stórar og veglegar töskur geta gert mikið fyrir annars látlausan klæðnað. AFP

Sérfræðingar úr tískugeiranum vita sitthvað um hvað hægt er að gera hvað fatastíl varðar ef tíminn er naumur. Vefritið Stylist tók saman bestu ráð sérfræðinga:

 Allt í sama lit

„Ég vinn í tískugeiranum og ferðast mikið vegna vinnu. Þegar ég þarf að vera vel til höfð en hef lítinn tíma þá passa ég á að pakka alltaf einlitum fötum í sama lit. Þá er auðvelt að para föt saman. Ég átta mig á því að svart getur verið leiðinlegt þannig að ég bæti stundum við einum lit t.d. með hálsmeni, sólgleraugum, töskum eða skóm. Þá má benda á að það er ekki hægt að slá feilnótu með síðri kápu og hælaskóm.,“ segir Lucy Mguire í viðtali við The Stylist.

Lucy Mguire vill bara klæðast einum lit til að auðvelda …
Lucy Mguire vill bara klæðast einum lit til að auðvelda sér lífið. Skjáskot/Instagram

Veldu geggjaða skó

„Ég legg alltaf áherslu á að velja einföld föt en poppa þau upp með fylgihlutum eins og geggjuðum skóm. Þá lítur maður út fyrir að hafa úthugsað útlist sitt. Þá getur rauður varalitur og flott veski gert mikið fyrir heildarútlitið,“ segir Nicki Hoyne skóhönnuður. „Þá er ég nýlega búin að tileinka mér þann sið á sunnudögum að velja föt fyrir vikuna og hengja þau upp á fataslá. Það hefur breytt öllu.“

Nicki Hoyne leggur áherslu á flotta skó við hversdagsleg föt.
Nicki Hoyne leggur áherslu á flotta skó við hversdagsleg föt. Skjáskot/Instagram

Hlutlausir litir eru vanmetnir

„Flestar flíkur mínar eru í hlutlausum lit. Ég get nánast valið flíkur úr fataskápnum blindandi og þær passa saman. Þetta gerir það að verkum að ég er fljót að hafa mig til,“ segir Krissy Turner.

Krissy Turner á bara föt í hlutlausum litum.
Krissy Turner á bara föt í hlutlausum litum. Skjáskot/Instagram

Samfestingur bjargar deginum

„Samfestingur úr gallaefni er það besta sem ég hef uppgötvað. Það er hægt að klæðast hann bæði spari og hversdags. Þá er samfestingur algjör tímasparnaður. Maður fer svo bara í síða kápu yfir hann á veturna,“ segir Amelia Heard.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda