Þú þarft að eignast buxur eins og Martha Stewart

Martha var glæsileg við frumsýningu heimildamyndarinnar Martha.
Martha var glæsileg við frumsýningu heimildamyndarinnar Martha. Ljósmynd/AFP

Lífsstílsdrottningin Martha Stewart mætti sú glæsilegasta á forsýningu Netflix-heimildarmyndarinnar Martha á dögunum. Stewart klæddist silfurlituðum buxum sem eru strax komnar á lista yfir þær flíkur sem verða fullkomnar og mikið notaðar yfir hátíðarnar.

Stewart klæddist buxunum við pastelfjólubláan jakka og við silfurlitaða skó. Helstu kostirnir eru þeir að silfurlitaðar buxur passa við margt og þær má klæða upp og niður. Einnig þarf ekki að bæta mörgu við dressið þegar silfurlitaðar buxur eru annars vegar, ljós toppur og svartur dragtarjakki kemur þér úr vinnunni og í kokteilboðið.

Silfurlituðu buxurnar slógu í gegn.
Silfurlituðu buxurnar slógu í gegn. Ljósmynd/AFP
Buxur frá Steve Madden, fást í NTC Outlet og kosta …
Buxur frá Steve Madden, fást í NTC Outlet og kosta 18.995 kr.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda