Klæðast karlar á miðjum aldri of þröngum buxum?

Hvernig væri að prófa beinar buxur í stað þröngra?
Hvernig væri að prófa beinar buxur í stað þröngra? Samsett mynd/AFP

Ég sótti viðburð í miðbæ Reykjavíkur fyrir nokkrum dögum. Þar var fólk á öllum aldri en mun fleiri af yngri kynslóðinni. Þetta voru listamenn, tónlistarmenn og hönnuðir og langflestir áttu það sameiginlegt að vera í sama sniði af buxum; mjög síðum og afskaplega víðum.

Síðar sama kvöld var ég stödd í einni af fínni mathöllum bæjarins þar sem langflestir gestirnir voru karlar á miðjum aldri. Þó að ég hafi það ekki staðfest þá gat ég samt séð af klæðaburðinum að þeir voru minna listrænir og meira fyrir leik að reikningsdæmum. Á meðal þeirra var líka eitt ríkjandi buxnasnið og það var mun þrengra.

Kynslóðabil í klæðnaði er eðlilegt en þarna eru miklar öfgar. Víðar og mjög síðar buxur áttu heima á viðburðinum en þessar þröngu í mathöllinni.

Það eru í kringum fimmtán ár síðan þröngar buxur urðu hluti af fataskáp flestra og þá allra kynja. Konur voru aðeins á undan sem oftar en þetta hélst þó í hendur. Áhrifin má rekja til tískuáhrifavalda þess tíma eins og fyrirsætunnar Kate Moss og tónlistarmannsins Petes Dohertys. Þá var fatastíll fólks rokkaður með bóhem-ívafi.

Pete Doherty og Kate Moss voru par í kringum árið …
Pete Doherty og Kate Moss voru par í kringum árið 2005. Ljósmynd/Instagram

Notaðar alls staðar við öll tilefni

En svo virðist sem þessar buxur hafi tekið við öllum buxum karlpeningsins á ákveðnum aldri og eru þær notaðar við öll tilefni. Hettupeysa? Þröngar gallabuxur. Skyrta og blazer? Þröngar gallabuxur. Köflótt þykk yfirskyrta? Þröngar gallabuxur. Afmæli, vinnan, laugardagsstúss í Byko? Þröngar gallabuxur. Mér þykir leitt að þetta þurfi að koma fram, en þröngu gallabuxurnar ganga ekki við allt.

Yngri kynslóðin fylgdi eftir tískuheiminum og sneri þessu við. Sem betur fer hafa fleiri konur fylgt því. Fataskápur kvenna er þó yfirleitt fjölbreyttari en gagnkynhneigðra karla og eru þær viljugri að breyta til. Svo virðist sem ákveðin kynslóð sé alls ekki til í að breyta til, hún er ánægð með sínar buxur og þannig er nú það. Eru þeir orðnir háðir stuðningnum sem þrönga teygjan veitir utan um kálfana?

Öfgarnar eru alltaf miklar í tískuheiminum en í þessum pistli er enginn að stinga upp á því að fara út í þær. Ég tala aðeins fyrir sjálfa mig þegar ég segi: það þarf ekki mikið til, en hvernig væri að prófa bara örlítið víðari buxur? Biðja um að máta beinar buxur í stað „extra-skinny?“ Bara hugmynd.

Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi.

Víðar gallabuxur eru vinsælar hjá konum en þessi mynd er …
Víðar gallabuxur eru vinsælar hjá konum en þessi mynd er frá tískusýningu Stellu McCartney. Julien De Rosa/AFP
Frá tískusýningu Boss.
Frá tískusýningu Boss. Gabriel Bouys/AFP
Frá vor- og sumarlínu fyrir árið 2025 frá ítalska tískuhúsinu …
Frá vor- og sumarlínu fyrir árið 2025 frá ítalska tískuhúsinu Bottega Veneta. Gabriel Bouys/AFP
Buxur frá Libertine Libertine, fást í Húrra Reykjavík og kosta …
Buxur frá Libertine Libertine, fást í Húrra Reykjavík og kosta 27.990 kr.
Buxur frá Zöru, kosta 13.995 kr.
Buxur frá Zöru, kosta 13.995 kr.
Gallabuxur frá Hugo, fást í Herragarðinum og kosta 16.980 kr.
Gallabuxur frá Hugo, fást í Herragarðinum og kosta 16.980 kr.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda