Danska tískumerkið Saks Potts hættir starfsemi næsta vor eftir tíu ára vegferð. Æskuvinkonurnar Barbara Potts og Cathrine Saks eru eigendur merkisins og tilkynntu þetta á Instagram-síðu merkisins á dögunum.
„Saks Potts að eilífu,“ skrifa þær. „Eftir tíu stórkostleg ár höfum við ákveðið að loka Saks Potts og það vorið 2025.“
Þær segja að þær ætli að prófa sig áfram á öðrum listrænum starfsvettvangi og öðrum tækifærum sem gætu opnast. Saks Potts hefur verið þekkt fyrir óvenjulega hönnun og hafa skapað sér sérstöðu sem töffarar Skandinavíu og víðar hafa sóst í. Þær taka fram að ákvörðunin sé ekki tekin fram vegna fjárhagsörðugleika heldur vilji þær aðrar áskoranir næstu tíu árin. Þær stofnuðu merkið þegar þær voru aðeins 19 og 20 ára.
Saks Potts hefur verið mjög farsælt fatamerki og hafa þær vinkonur verið miklir áhrifavaldar í skandínavíska tískuheiminum. Fjöldi tískudrottninga hér á landi þekkja merkið en það hefur fengist í Andrá Reykjavík síðustu ár. Það er ljóst að margir muni sakna merkisins og hafa þær fengið fjöldann allan af kveðjum síðustu daga.
„Þetta er fallegt. Ekkert varir að eilífu og það þarf kjark til að vita hvenær á að hætta, sérstaklega þegar það gengur vel,“ skrifar Sophia Amoruso, stofnandi amerísku verslunarinnar Nasty Gal og rithöfundur.
„Spennt fyrir næsta kafla,“ skrifar Pernille Teisbæk, danskur tískuáhrifavaldur.