54.000 kr. pallíettublússa Kristrúnar kemur ekki aftur

Kristrún Frostadóttir.
Kristrún Frostadóttir. mbl.is/Eyþór Árnason

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar negldi sig inn í ríkisstjórn í 54.000 króna pallíettublússu. Pallíettublússan er frá Polo Ralph Lauren og fæst hérlendis í verslunum Mathilda í Kringlu og Smáralind og í Collections á Hafnartorgi. Pallíettublússan seldist upp eftir að Kristrún klæddist henni. 

Gulla Bjarnadóttir verslunarstjóri í Collections á Hafnartorgi staðfestir það í samtali við Smartland að blússan sé nánast uppseld. 

„Það er ein eftir í Smáralind og hún kemur því miður ekki aftur,“ segir Gulla en fólk þarf ekki að örvænta því það er til heilmikið af fallegum fatnaði í versluninni sem ætti að falla í kramið fyrir komandi partítíð. 

Tískudrottningin Gulla Bjarnadóttir segir að blússan sé uppseld.
Tískudrottningin Gulla Bjarnadóttir segir að blússan sé uppseld. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda