Töskur eru meira en fylgihlutur á handlegg þeirra sem elska tísku. Þær eru praktík, geymsla fyrir það sem þú þarft að hafa með þér yfir daginn. Hátískumerkin hafa þó keppst við síðustu ár að hanna vinsælustu töskuna, svokallaða „it-bags“ sem stjörnur, áhrifavaldar og almenningur missa sig yfir.
Útlit þeirra endurspeglar tíðaranda hvers árs fyrir sig, hvernig föt voru í tísku, hverju var fólk að leita að, var það nostalgía eða meiri módernismi? Hvernig var taskan notuð, til og frá vinnu eða aðeins í kokteilboð? Þarf taskan að gegna báðum hlutverkum?
Töskur frá hátískuhúsum kosta yfirleitt annan handlegginn, sumar hátt í báða en það er ómögulegt því það þarf að geta haldið á gripnum. En ef þær eru vel gerðar þá eru þær lífsstíðareign, eldast vel og detta ekki úr tísku eins og sagt er.
Þessum lista yfir vinsælustu töskur frá árinu 2000 fylgir mikil nostalgía. Eftir töskum sem maður sá á vel klæddum konum í helstu stórborgum heims og óskaði þess að geta keypt sér. Aðrir lögðu fyrir og fjárfestu í draumatöskunni. Nokkrar af töskunum á þessum lista eru hættar í framleiðslu og seljast á ofsaháu verði á endursölusíðum. Töskur eins og Balenciaga City Bag sem var hvað vinsælust í kringum árið 2001 var með þvílíka endurkomu í sumar og því um klassískan grip að ræða þó að hún hafi sinn karakter. Tískan fer nú yfirleitt í hringi, allavega rjóminn af henni.
Taskan er hönnuð af John Galliano fyrir franska hátískuhúsið Dior og vakti strax athygli fyrir áhugaverða lögunina. Innblásturinn að töskunni kom frá hnökkum fyrir hesta. Taskan birtist í Sex & The City og var það Sarah Jessica Parker sem lék Carrie sem var með töskuna. Saddle Bag datt úr tísku en kom aftur með miklum hraða aftur inn í tískuheiminn árið 2018 og er algjörlega tímalaus gripur.
Taskan er hönnun Nicoles Ghesquiére varð strax vinsæl vegna þess hversu góð hversdagstaska hún er. Hún er skreytt álpinnum, mjúkum handföngum og eyddu leðri. Taskan er praktísk, elegant og töffaraleg sem var einmitt það sem fólk var að leita af á þessum tíma. Hún fór vel við bóhemtískuna sem var ríkjandi á þessum tíma og sást ofurfyrirsætan Kate Moss oft með töskuna. Í sumar varð hún gríðarlega vinsæl aftur og án efa margir sem grófu sína gömlu aftur upp.
Þetta var samvinnuverkefni á milli fatahönnuðarins Marc Jacobs og listamannsins Takashi Murakami. Þeir breyttu klassísku Speedy-töskunni og gerðu hana litskrúðugari sem gladdi tískuunnendur mikið. Taskan sást á áhrifavöldum og stórstjörnum um allan heim og er afrakstur eins árangursríkasta samstarfs tísku- og listaheimsins.
Fléttuð handföng sem öskruðu lúxus einkenndi töskuna þegar hún kom fyrst fram á sjónvarsviðið. Taskan þótti áhugaverð vegna þess að hún var með leynihólfum- og vösum. Stjörnur eins og Madonna og Kim Kardashian sáust oft með töskuna og enn þann dag í dag selst hún hratt upp á endursölusíðum. Taskan var hönnuð af Silviu Fendi og markaði þáttaskil í rekstri Fendi-tískuhússins og kom fylgihlutunum þeirra á kortið.
Taska sem margir ættu að muna eftir og þá aðallega vegna lásnum sem hékk á henni. Taskan varð svo vinsæl og biðlistarnir eftir að geta keypt töskuna nánast endalausir. Taskan þótti praktísk, með bóhemútliti og var hönnuð af Phoebe Philo.
Tímalaus og elegant, ekta Yves Saint Laurent. Taskan þótti mjög fáguð og heillaði konur eins og Kate Moss og Angelinu Jolie. Taskan var praktísk, ekki of æpandi og áberandi. „Hljóðlaus“ lúxus eins og einhverjir myndu orða það.
Töskunni var gefið nafnið eftir fyrirsætunni Jessicu Stam. Taskan er stungin með gullkeðju. Jacobs var undir áhrifum frá áttunda áratugnum við hönnunina. Stjörnur eins og Lindsay Lohan og Paris Hilton sáust oft með töskuna.
Endurútgáfa frá Chanel í tilefni af fimmtíu ára „afmæli“ 2.55 töskunnar frá franska hátískuhúsinu. Endurútgáfan sannaði það að gripur getur farið kynslóða á milli án þess að missa sjarma sinn. Taskan var endurgerð í upphaflegu útliti, með fræga Mademoiselle -lás og keðju. Taskan heillaði alla þá sem voru eftir tímalausri tösku.
Hönnuð fyrir uppteknar konur sem ferðast oft á milli mismunandi staða. Innblásturinn af töskunni var gamaldagsskólataska og varð hún strax gríðarlega vinsæl um allan heim. Taskan þótti vel gerð, var minimalísk og kom í mörgum mismunandi litum og nokkrum stærðum.
2009: Mulberry Alexa Bag
Alexa Chung, fyrirsæta og tískustjarna, var innblásturinn af þessari tösku. Taskan þótti flott til að nota hversdagslega. Upphaflega voru það mikið af ungum konum sem heilluðust af töskunni sem var bæði praktísk og flott. Þessi taska varð gríðarlega vinsæl og var ein mest selda vara Mulberry í mörg ár.
Önnur taska á þessum lista eftir einn farsælasta fatahönnuð síðari ára, Phoebe Philo. Taskan var hönnuð sem praktískur listmunur og voru fjölmargir æstir í að eignast þessa tösku. Taskan kom í mörgum útgáfum, leðri, ullarefni og meira að segja úr snákaskinni. Þetta er sú taska sem Philo er hvað frægust fyrir að hafa hannað.
Nútímaleg og kraftmikil taska fyrir konur á þeim tíma. Hún var hönnuð af Riccardo Tisci og varð fljótt mjög klassísk eign. Taskan þótti henta vel til hversdagsnota en einnig við fínni tilefni.
Vinsældir töskunnar náðu hámarki í kringum árið 2012 og varð taska fyrir þær sem leituðu af praktískri týpu sem mikið notagildi væri í. Það sló í gegn að hægt var að gera töskuna persónulegri, láta upphafsstafi sína á töskuna og velja um fóður. Taskan sneri aftur á árinu 2024 og er enn þann dag í dag einn mest seldi gripur tískuhússins.
2013: Saint Laurent Day Bag,
„Taska dagsins“ varð að nútímalegri og klassískri tösku sem passaði við margt. Tímalaust útlit hennar gerði hana fljótt að tösku sem flestar konur urðu að eignast.
Taskan sem komst fljótt á óskalista ansi margra þegar hún kom fyrst út. Taskan var hönnuð af Karl Lagerfeld og þótti töffaraleg og nútímalegri en aðrar töskur frá Chanel. Taskan heillaði fyrir að vera töff en á sama tíma mjög klassísk.
Alessandro Michele blés nýju lífi inn í ítalska tískuhúsið Gucci með Dionysus-töskunni. Tígrisklemman og bróderingarnar gerðu töskuna heillandi og mjög eftirsótta. Engin minimalismi var þarna við hönd heldur frekar maximalismi sem varð síðan stefna hans á þessum tíma hjá Gucci.
Púsltaskan var hönnuð af Jonathan Anderson og er hönnuð á mjög tæknilegan hátt. Hún varð fljótt eftirsótt af þeim sem vildu aðeins öðruvísi fylgihlut í skápinn.
Stóra taskan sem flestir hentu öllu dótinu sínu í varð fljótt að lúxusfylgihlut þegar franska tískuhúsið Christian Dior gerði sína útgáfu. Taskan var hönnuð fyrir fólk á ferðinni og var mynstruð, oftast dökkblá og kremlituð. Stórstjörnur eins og Rihanna sáust mikið með hana sem hefur eflaust aukið vinsældir töskunnar. Það var hægt að gera töskuna persónulegri og skipta út „Christian Dior“ fyrir nafnið sitt.
Þetta er þriðja Chanel-taskan á listanum en töskurnar frá hátískuhúsinu hafa gjarnan verið eftirsóttar í gegnum tíðina. Gabrielle-taskan var hönnuð með Gabrielle Chanel í huga og er einstök, margnota og býður upp á nokkra möguleika með hvernig á að halda á henni. Útlitið er svolítið rokkað og varð taskan fljótt vinsæl.
Þessi taska var gjörsamlega út um allt og var notuð af stórstjörnum og áhrifavöldum. Taskan er minimalískt úr gæðamiklu leðri og kom Bottega Veneta á kortið aftur undir listrænni stjórn Daniel Lee. Þetta er klassísk taska sem er enn vinsæl hjá tískuhúsinu. Ofurfyrirsætan Rosie Huntington-Whiteley var dugleg að birta myndir af sér á Instagram með töskuna og gerir enn.
Líklega eina taskan á þessum lista sem er á viðráðanlegu verði fyrir flesta. Töskunni var fagnað fyrir útlit og verð. Hún er mínimalisk og praktísk og sást mikið af þeim sem sóttu tískuvikurnar um allan heim. Leikkonan Zoë Kravitz og Dua Lipa voru miklir aðdáaendur töskunnar.
Á þessum árum var Prada eitt vinsælasta tískuhús í heiminum. Cleo-taskan var mínimalisk en minnti svolítið á tísku tíunda áratugarins og var mest áberandi í svörtu, glansandi leðri.
La Cagole var einhverskonar endurútgáfa af City-töskunni sem var vinsælust árið 2001 og sett í enn meiri rokk- og nútímalegri búning. Taskan var fyrir þá sem þorðu að bera þennan áberandi fylgihlut og var mjög vinsæl hjá áhrifavöldum.
Wander-taskan var stungin og formið hringlaga. Það má annað hvort skella töskunni á öxlina eða halda á henni en þetta varð fljótt mjög vinsæl taska frá „litlu systur“ ítalska tískuhússins Prada. Taskan er vinsæl enn þá í dag og er notuð af stjörnum eins og Hailey Bieber.
Gucci Horsebit frá árinu 1995 var endurútgefin í kringum árið 2020 með vísanir í hönnun tískuhússins upphaflega í kringum hestafólk. Taskan er tímalaus, klassísk og gengur upp sama hvaða árið er. Alessandro Michele gerði nýrri útgáfu af klassískri tösku og lék sér að áferð og litum.