Íslenskar konur með næststærstu brjóstin

Rannsakendum virðist ekki hafa dottið í hug að taka brjóstastækkanir …
Rannsakendum virðist ekki hafa dottið í hug að taka brjóstastækkanir kvenna inn í jöfnuna. Jon Ly/Unsplash

Samkvæmt nýrri alþjóðlegri rannsókn eru norskar konur með stærstu brjóstin en meðalskálastærð þeirra er C og D.

Rannsóknin var framkvæmd af World Population Review og skoðaðar voru brjóstastærðir kvenna í 108 löndum. Þetta kemur fram á norska miðlinum Dagbladet.

Norskar konur hafna efstar á lista sem kemur rannsakendum á óvart þar sem alvanalegt er að brjóstastærð haldist í hendur við líkamsþyngdarstuðulinn BMI. Þær norsku hafa BMI-stuðulinn 26,2 að meðaltali, sem telst til yfirþyngdar.

Hins vegar er stuðull norskra kvenna lægri en kvenna í Bandaríkjunum, með 29 að meðaltali, og á Bretlandi, með 27,1 að meðaltali. Bæði Bandaríkin og Bretland deila öðru sæti með Íslandi og Lúxemborg þegar kemur að brjóstastærð kvenna, en meðalskálastærð kvenna í löndunum fjórum er C.

Þess má geta að þyngdarstuðull íslenskra kvenna er lægri en allra ofangreindra landa og er 25,6 að meðaltali.

Minnstu skálastærðirnar er að finna í Mið-Afríku og Suðaustur-Asíu.

Rannsakendur telja að erfðaþættir geti útskýrt stærri brjóstastærð norskra kvenna miðað við Bretland og Bandaríkin, þrátt fyrir að þyngdarstuðullinn sé lægri. Nokkrir þættir geta haft áhrif á brjóstastærð; erfðir, mataræði, líkamsþyngd og aldur, samkvæmt World Population Review.

Dagbladet

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda