Halla nýtir 642 þúsund króna kjólinn vel

Halla var áhugasöm um matseldina á hátíðarkvöldverðinum.
Halla var áhugasöm um matseldina á hátíðarkvöldverðinum. Ljósmynd/Ólafur Árdal

Halla Tómasdóttir forseti Íslands mætti ásamt Birni Skúlasyni eiginmanni sínum í hátíðarkvöldverð Klúbbs matreiðslumeistara á dögunum. Hátíðarkvöldverðurinn fór fram í Hörpu og voru gestir mættir í sínu fínasta pússi. Kjóllinn sem Halla klæddist vakti mikla athygli en þetta er ekki í fyrsta skipti sem hún klæðist kjólnum. 

Glöggir taka eftir því að þetta er sami kjóll og Halla klæddist í galakvöldverði sem haldinn var í Kristjánsborgarhöll á síðasta ári. Kjóllinn er frá breska fatahönnuðinum Jenny Packham, er gylltur og alsettur kristöllum og pallíettum. 

Ljósmynd/Ólafur Árdal

Klassískur kjóll

Smartland greindi frá því að kjóllinn kostar 642 þúsund krónur ef hann er pantaður á netinu. Höllu þykir augljóslega vænt um kjólinn sem er mjög klassískur og fer henni vel. Það er engin ástæða til að klæðast svona flík aðeins einu sinni og munum við eflaust sjá Höllu klæðast honum aftur í framtíðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda