Allra augu voru á leikkonunni Lyndu Carter, einna þekktust fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttaröðinni Wonder Women sem sýnd var á árunum 1976 til 1979, er hún mætti ásamt dóttur sinni á tískusýningu franska tískuhússins Schiaparelli í París á mánudag.
Fjöldi þekktra einstaklinga hefur á síðustu dögum ferðast til borgarinnar til að virða fyrir sér allt það nýjasta úr heimi tískunnar, en Haute Couture-tískuvikan hófst í gærdag og stendur fram á næsta fimmtudag, 30. janúar.
Carter, sem er 73 ára gömul, vakti mikla athygli fyrir unglegt og geislandi útlit sitt og djarft fataval, en leikkonan mætti svartklædd frá toppi til táar líkt og dóttir hennar.
Meðal annarra gesta á tískusýningunni voru söngkonan Pixie Lott, fyrirsætan Carla Bruni og Óskarsverðlaunaleikkonan Regina King.