Leikkonan Kelly Preston, eiginkona John Travolta, keypti íslenska húðdropa frá Sif Cosmetics á ferð sinni í Leifsstöð síðasta fimmtudag.
Hún var á ferð með eiginmanni sínum, John Travolta, en þau stoppuðu á Íslandi til að taka eldsneyti. Að sögn Víkurfrétta er John Travolta mikill flugáhugamaður og flaug hann sjálfur vél Qantas-flugfélagsins af tegundinni Boeing 707.
Í Víkurfréttum segir:„Flugvélin var staðsett á flughlaðinu hjá Suðurflugi á austursvæði Keflavíkurflugvallar en á meðan eldsneyti var sett á vélina fór John Travolta ásamt föruneyti í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem hann verslaði íslenskan varning. Af Facebook-færslum að dæma keypti hann mikið af fatnaði í verslun 66°Norður í Leifsstöð.“
Brynja Magnúsdóttir sölustjóri hjá Sif Cosmetics segir að Kelly Preston hafi keypt glas af húðdropunum af starfsmanni Fríhafnarinnar.
„Það er ánægjulegt að húðdroparnir séu nú komnir til Hollywood.“